Nelson skoraði eina markið er Arsenal fór áfram

Dagur Lárusson skrifar
Reiss Nelson fagnar marki sínu í kvöld.
Reiss Nelson fagnar marki sínu í kvöld. Vísir/getty

Arsenal er komið áfram í deildarbikarnum eftir 0-1 sigur á Brentford í kvöld en mark Arsenal skoraði Reiss Nelson.

Arsenal var mikið sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og átti liðið mikið af marktækifærum en eina markið kom á 8.mínútu leiksins þegar Reiss Nelson fékk boltann óvænt til sín inn á teig og kom boltanum í netið.

Staðan var 0-1 hálfleik en í seinni hálfleiknum voru það leikmenn Brentford sem voru öflugri en aldrei náðu þeir hins vegar að brjótast í gegnum sterka vörn Arsenal og því fór sem fór. Arsenal komið áfram í deildarbikarnum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira