Félag Árna Odds tapaði yfir 1.100 milljónum eftir verðfall á bréfum Marels
![Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, en hann fer með yfir 18 prósenta - bæði í eigin nafni og eins í gegnum samnefnt eignarhaldsfélag sitt - í fjárfestingafélaginu Eyri Invest. Virði hlutar félagsins í Marel hefur lækkað um meira en hundrað milljarða frá því um haustið 2021.](https://www.visir.is/i/3EF2B5B31FB93361F277ED40A6A2016709AB8F1C383E15D93CB5E0BCFE5B96A2_713x0.jpg)
Eignarhaldsfélag í eigu Árna Odds Þórðarsonar, forstjóra Marels, tapaði yfir 1.122 milljónum króna á síðasta ári eftir mikið verðfall á gengi bréfa Marels sem er eina undirliggjandi eign félagsins. Eigið fé þess var neikvætt um liðlega 600 milljónir um áramótin en endurgreiðsla láns við fjármálastofnun sem hvílir á félaginu, tryggt með veðum í bréfum Eyris Invest, var framlengt til þriggja ára.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/9230F542804FE5723D3907F83BADA7360828B7BFA62CEFCCF5B893193EBBFCAA_308x200.jpg)
Rekstrarhagnaður Marels verður sá lægsti í átta ár
Rekstur Marels verður ekki „sérlega glæsilegur“ í ár. Það stefnir í að rekstrarhagnaður fyrirtækisins verði sá lægsti síðan árið 2015. Verðmat Jakobsson Capital á Marel lækkaði aftur í kjölfar uppgjörs annars fjórðungs, nú um átta prósentum í evrum talið.
![](https://www.visir.is/i/995EFD2A5B3CDA8BAE28049C6A3EB08CEC8C215768F0844C6E5C16C4BAE90140_308x200.jpg)
Marel réttir úr kútnum við brotthvarf sjóðastýringarrisans Capital Group
Bandaríski sjóðastýringarrisinn Capital Group, sem var lengi stærsti erlendi fjárfestirinn í Marel, hefur á liðlega 20 mánuðum losað um alla hluti sína en sjóðir félagsins voru um tíma með samanlagt um 40 milljarða króna hlutabréfastöðu í íslenska fyrirtækinu. Hlutabréfaverð Marels hækkaði skarpt undir lok vikunnar vegna væntinga um að brotthvarf Capital Group úr hluthafahópnum myndi létta á stöðugu framboði bréfa til sölu í félaginu.