Systkini gera það gott hjá Stjörnunni og eiga ekki langt að sækja hæfileikana Aron Guðmundsson skrifar 21. október 2023 09:01 Ásmundur Múli Ármannsson og Kolbrún María Ármannsdóttir eru að koma inn af krafti í Subway deildum karla og kvenna á yfirstandandi tímabili. Vísir/Einar Systkini að Vestan eru að vekja töluverða athygli í Subway deildunum í körfubolta núna í upphafi tímabils með liðum Stjörnunnar. Þau Kolbrún María og Ásmundur Múli koma af miklu körfuboltaheimili og stefna langt í íþróttinni.
Það var á dögunum sem hin 15 ára gamla Kolbrún María Ármannsdóttir, sem var valin besti ungi leikmaður 1.deildarinnar í fyrra, sló rúmlega nítján ára gamalt met Helenu Sverrisdóttur er hún varð yngsti leikmaðurinn í efstu deild til þess að skora 31 stig í einum og sama leiknum. Kolbrún María leikur lykilhlutverk hjá nýliðum Stjörnunnar. „Þetta hefur verið frábær reynsla hingað til. Að spila á móti betri leikmönnum og fá þessa reynslu, á meðan að maður er enn ungur leikmaður, að spreyta sig í efstu deild á móti leikmönnum á borð við Hildi Björgu og Helenu Sverris. Það er bara geggjað.“ Eins og greint er frá fyrr í fréttinni skrifaði Kolbrún María nafn sitt í sögubækurnar á dögunum er hún varð yngsti leikmaðurinn í sögu efstu deildar til þess að skora 31 stig og bætti þar með met sem var áður í eigu Helenu Sverrisdóttur og hafði verið í hennar eign síðan árið 2004. Kolbrún var aðeins 15 ára, níu mánaða og níu daga gömul er hún bætti metið sem Helena hafði sett sextán ára, átta mánaða og fjögurra daga gömul. Hafðirðu hugmynd um það strax eftir leik að þú hefðir bætt þetta met Helenu? „Nei ég hafði ekki hugmynd um það. Ég fékk bara símtal seinna frá Arnari þjálfara þar sem að hann sagði mér frá þessu.“ Helena Sverrisdóttir er ein besta körfuboltakona sem Ísland hefur áttVísir/Bára Dröfn En hvernig var tilfinningin þegar að þú fréttir svo af þessu? „Það er náttúrulega bara frábært að hafa náð þessu en á sama tíma er ég ekkert að hugsa allt of mikið út í þetta. Ég held bara áfram að gera mitt.“ Hefur staðið undir traustinu Bróðir Kolbrúnar. Hinn 16 ára gamli Ásmundur Múli Ármannsson. Hlaut eldskírn sína með meistaraflokki Stjörnunnar á síðasta tímabili og hefur á yfirstandandi tímabili verið treyst fyrir fleiri mínútum innan vallar. Þar hefur hann vakið verðskuldaða athygli. „Það er gaman að taka þátt í þessu verkefni og ég er Arnari þjálfara virkilega þakklátur fyrir traustið sem hann er að sýna mér. Ég vona að ég nái að halda áfram á sömu braut.“ Arnar Guðjónsson, er þjálfarinn hjá bæði karla- og kvennaliði StjörnunnarVísir/Hulda Margrét Það sé virkilega gott fyrir hann að vera í Stjörnunni nú þegar að hann sé á þessum mikilvæga tíma á sínum ferli. „Stjarnan er með virkilega flott yngri flokka starf og hér eru allir tilbúnir í að hjálpa manni þegar að maður er hjálparþurfi.“ Eiga ekki langt að sækja hæfileikana í körfubolta Ferlar Ásmundar og Kolbrúnar hafa verið skemmtilega samstíga. Bæði urðu þau bikarmeistarar með yngri flokkum Stjörnunnar á síðasta ári og voru þar bæði valin verðmætustu leikmenn keppninnar. Nú eru þau á fullu í meistaraflokksboltanum og plumma sig þar vel. Systkinin eiga ekki langt að sækja hæfileikana í körfunni. Móðir þeirra, Stefanía Helga Ásmundsdóttir varð á sínum tíma Íslandsmeistari með liði Grindavíkur árið 1997. Stefanía Helga Ásmundsdóttir (til vinstri) fagnar Íslandsmeistaratitlinum 1997 með liðsfélögum sínum í liði Grindavíkur „Hæfileikarnir í körfuboltanum koma allir frá mömmu, ekkert frá pabba,“ segir Ásmundur Múli kíminn. En er talað um eitthvað annað en körfubolta á ykkar heimili? „Nei eiginlega ekki,“ svarar Ásmundur. „Körfubolta og jú pabba gamla finnst gaman að ræða fótbolta. Þannig að það er mikið rætt um íþróttir á okkar heimili.“ Þrátt fyrir að vera virkilega flottir og efnilegir alhliða leikmenn nú þegar eru systkinin með augastað á eiginleikum hjá hvort öðru sem þau væru til í að bæta við sinn leik. Flottir leikmenn sem geta náð langtVísir/Einar „Hann er mjög góður í því að koma upp af dripplinu og fara upp í skot. Það er eitthvað sem ég væri til í að bæta í mínum leik,“ svarar Kolbrún María og það stendur heldur ekki á svörum hjá Ásmundi varðandi það hverju úr leik systur hans, hann væri til í að bæta við sinn leik. „Hún gefst aldrei upp og er alltaf á fullu. Það er eitthvað sem ég væri til í að bæta enn frekar við minn leik. Þrautseigjan sem hún býr yfir.“ Ferill þessara öflugu leikmanna er enn á byrjunarstigi en markmiðin eru háleit og góð. „Ég vil bara halda áfram að vinna mér inn þessar mínútur sem ég hef verið að fá inn á vellinum,“ segir Ásmundur aðspurður um markmið hans á næstunni. „Skila af mér góðri frammistöðu og bæta mig eftir því sem líður á.“ Þá vill hann sanka að sér því góða sem kemur frá því að spila og æfa með reynslumiklum leikmönnum á borð við Hlyn Bærings og Ægi Þór Steinarsson. „Þeir eru duglegir við að hjálpa manni. Beina manni í rétta átt. Það er aldrei neitt vesen í kringum þá.“ Kolbrún María er einnig með góð markmið og ætlar að gera sitt til að hjálpa liðinu sínu. „Ég vil gera mitt besta til að hjálpa Stjörnunni að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Það er markmiðið hjá okkur. Við erum náttúrulega nýliðar í deildinni en stefnum bara á að vinna eins marga leiki og við getum og tryggja okkur sæti í úrslitakeppninni.“ Innslagið úr Sportpakka Stöðvar 2 og viðtalið allt við systkinin má sjá í spilaranum hér að ofan.
Subway-deild karla Stjarnan Mest lesið Magnað heimsmet í hálfu maraþoni Sport Diaz kom Liverpool í toppmál Enski boltinn Pat Vellner valdi að fara sömu leið og Anníe Mist Sport Ekki sama hvort það er „fuck off“ eða „fuck you“ Fótbolti Sektar eigin leikmenn eftir tapið gegn Víkingum Fótbolti Armstrong til Man United frá PSG Enski boltinn Wembanyama og Paul svindluðu og voru reknir úr keppni Körfubolti Leeds mun banna stuðningsfólk sem syngur and-palestínska söngva Enski boltinn Nistelrooy og Keown grófu stríðsöxina og slógu á létta strengi Enski boltinn Mbappé syrgir tíu ára aðdáanda Fótbolti Fleiri fréttir Wembanyama og Paul svindluðu og voru reknir úr keppni Martin í hópnum sem gæti skilað Íslandi á EM Háspennuleikir á Akureyri og Króknum Grindavík upp úr fallsæti með sigri á botnliði Aþenu Orkan í Arnóri til fyrirmyndar: „Þetta eru góð skilaboð til ungra leikmanna“ Fann aftur keppnisskapið: „Með því skemmtilegra sem ég geri“ Fékk aðstoð úr óvæntri átt í veikindunum „Ég held að mínir leikmenn upplifi pressu á heimavelli“ Uppgjörið: KR-Valur 89-96 | Fimmti sigur Vals í röð kom í framlengingu Uppgjörið: ÍR - Njarðvík 91-95 | Sterkur gestasigur eftir æsispennandi leik í Skógarselinu Braut hnéskelina sína og missir af restinni af Bónus deildinni Valentínusarveisla í Vesturbæ Fékk nýra frá mömmu og þurfti hennar leyfi til að snúa aftur Íslensku félögin greiddu KKÍ 44 milljónir til að skrá leikmenn Leikmanni Lakers leið eins og hann væri staddur í kvikmynd Viðar Örn Hafsteinsson: Við ætlum okkur að skrifa söguna Baldur Ragnarsson: Alls ekki góðir í 35 mínútur „Ekkert sérstaklega upptekinn af því að við erum fallnir” Uppgjör: Höttur-Stjarnan 83-86 | Stjarnan marði sigur á Hetti Uppgjör: Tindastóll-Þór Þ. 109-96 | Átta heimasigrar í röð hjá Stólunum Leik lokið: Haukar-Keflavík 95-104 | Siggi Ingimundar með sigur í fyrsta leik Tveir leikjahæstu þjálfarar efstu deildar mætast: „Höfum verið lengi í þessu“ GAZ-leikurinn: „Ef einhver getur lamið Keflavík í þetta lið þá er það Sigurður“ Enn sami Siggi Ingimundar og áður: „Og bara rúmlega það“ Uppgjör: Grindavík - Álftanes 92-94 | Dúi hetjan í fjarveru NBA mannsins Jón Axel raðaði niður þristunum í dýrmætum sigri Martin fann ekki körfuna en fann liðsfélagana Martin má ekki koma Keflavík til bjargar „Luka, vertu fokking þú sjálfur“ Lakers gefur öllum Luka Doncic treyjur fyrir fyrsta leikinn Sjá meira