Lífið

Ó­fæddur sonur Kar­dashian kominn með ó­venju­legt nafn

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Kardashian og Barker á Óskarsverðlaunahátíðinni í fyrra.
Kardashian og Barker á Óskarsverðlaunahátíðinni í fyrra. EPA

Trommuleikarinn Travis Barker, eiginmaður raunveruleikastjörnunnar Kourtney Kardashian, leysti frá skjóðunni hvað ófæddur sonur þeirra ætti að heita í hlaðvarpsþætti á dögunum.

Parið greindi frá því í Instagram færslu í júní að þau ættu von á barni. Kardashian tilkynnti honum að hún gengi með barn á tónleikum Blink-182, hljómsveitar Barker, með því að halda uppi stóru skilti sem á stóð „Travis ég er ólétt“.

Barker var gestur í hlaðvarpsþættinum One Life One Chance with Toby Morse í gær. Þar sagði hann að settur fæðingardagur drengsins væri í fyrstu vikunni í nóvember. Þá sagði hann að sonurinn kæmi til með að fá nafnið Rocky Thirteen Barker. 

Hann sagði Rocky-nafnið til komið vegna þess hve mikið hann liti upp til gítarleikarans Rocky George, sem lék með hljómsveitinni Suicidal Tendencies. „Og svo er þrettán bara besta tala allra tíma,“ sagði Barker í þættinum. 

Kardashian og Barker gengu í það heilaga í fyrra eftir rúmlega eins árs langt ástarsamband. Bæði eiga þau börn fyrir en Rocky er fyrsta barn þeirra saman. Kardashian á börnin Mason, Penelope og Reign með raunveruleikastjörnunni Scott Dissick. Þá á Barker börnin Alabama, Atiana og Landon með fyrirsætunni Shanna Moakler. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.