Newcastle fyrsta liðið til að sigra Arsenal

Anthony Gordon fagnar marki sínu
Anthony Gordon fagnar marki sínu Vísir/getty

Fyrir leikinn var Arsenal í þriðja sæti deildarinnar með 24 stig á meðan Newcastle var í áttunda sætinu með 17 stig.

Það var hart barist í fyrri hálfleiknum en þó ekki mikið um opin marktækifæri. Bæði lið vörðust vel enda eru Arsenal og Newcastle þau lið sem hafa fengið hvað fæst skot á sig í deildinni í vetur.

Það athyglisverðasta sem gerðist í fyrri hálfleiknum gerðist á 37. mínútu þegar Kai Havertz braut á leikmanni Newcastle og fékk að líta gula spjaldið en leikmenn Newcastle vildu annan lit á spjaldið. 

Hvorugu liðinu tókst að skora í fyrri hálfleiknum en það breyttist þó í þeim seinni. Newcastle byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti og náði Anthony Gordon að koma boltanum í netið á 64. mínútu eftir að Joelinton skallaði boltann til hans inni á teignum.

Leikmenn Arsenal reyndu hvað þeir gátu að jafna metin en allt kom fyrir ekki og lokatölur því 1-0 og fyrsta tap Arsenal í deildinni staðreynd. Eftir leikinn er Newcastle komið með 20 stig og er í sjötta sæti deildarinnar en Arsenal er enn í þriðja sætinu með 24 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira