Fótbolti

Albert skoraði eina mark Genoa í tapi

Dagur Lárusson skrifar
Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson. Getty/Simone Arveda

Albert Guðmundsson og félagar í Genoa fóru í heimsókn til Cagliari í Serie A í dag þar sem Albert skoraði eina mark gestanna.

Fyrir leikinn var Genoa í fimmtánda sæti deildarinnar með ellefu stig á meðan Cagliari var í næst neðsta sætinu með sex stig.

Eftir markalausan fyrri hálfleik var það Cagliari sem náði forystunni í byrjun seinni hálfleiks með marki frá Nicolas Viola sem var nýkominn inn af varamannabekknum.

Albert Guðmundsson steig þá upp og jafnaði metin nokkrum mínútum síðar eða á 51. mínútu og því allt orðið jafnt aftur.

En það var svo Gabriele Zappa sem náði forystunni fyrir Cagliari á nýjan leik á 68. mínútu og reyndist það síðasta mark leiksins og því sigur Cagliari staðreynd sem er komið í sautjánda sæti deildarinnar með níu stig á meðan Genoa er enn í fimmtánda sætinu með ellefu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×