Stjarnan tapaði með minnsta mun í báðum Olís-deildunum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 10. nóvember 2023 22:45 Eva Björk Davíðsdóttir var frábær í kvöld en það dugði ekki til að þessu sinni. Vísir/Hulda Margrét Fram vann Stjörnuna með minnsta mun í Olís deild karla á sama tíma og Valur vann Gróttu með tíu marka mun. Í Olís-deild kvenna vann Afturelding eins marks sigur á Stjörnunni.
Þrátt fyrir góðan lokasprett þá þurfti Stjarnan að sætta sig við eins marks tap gegn Fram á heimavelli í kvöld, lokatölur 31-32. Starri Friðriksson var magnaður í liði Stjörnunnar með 10 mörk. Rúnar Kárason gerði slíkt hið sama í liði Fram. Þá var Reynir Þór Stefánsson með 9 mörk. Adam Thorstensen varði 19 skot í marki Stjörnunnar á meðan Lárus Helgi Ólafsson varði 10 skot í marki Fram. Valsmenn unnu öruggan sigur á Seltjarnarnesi, lokatölur 29-39. Andri Fannar Elísson skoraði 9 mörk í liði Gróttu á meðan Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði 8 mörk í liði Vals. Ísak Gústafsson kom þar á eftir með 7 mörk. Valur er á toppi deildarinnar með 16 stig eftir 8 sigra og eitt tap í fyrstu 9 leikjum tímabilsins. Fram er í 4. sæti með 11 stig, Grótta er í 9. sæti með 6 stig og Stjarnan er sæti neðar með 5 stig. Í Olís-deild kvenna vann Afturelding góðan eins marks útisigur á Stjörnunni í Garðabæ, lokatölur 22-23. Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 8 mörk í liði Stjörnunnar og Anna Karen Hansdóttir kom þar á eftir með 7 mörk. Darija Zecevic varði 11 skot í markinu. Katrín Helga Davíðsdóttir skoraði 6 mörk í liði Aftureldingar og Saga Sif Gísladóttir varði 12 skot í markinu. Um var að ræða annan sigur Aftureldingar á tímabilinu og liðið því komið með 4 stig í 7. sæti á meðan Stjarnan er í botnsætinu með 3 stig.
Handbolti Olís-deild kvenna Olís-deild karla Stjarnan Mest lesið McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Körfubolti Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Enski boltinn „Tími til kominn að taka afstöðu gegn Ísrael“ Sport Fer á mjög dimman stað þegar lið hans tapar Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti Dagskráin í dag: Knicks ásamt íslenskum körfubolta og íslenskri pílu Sport Hvað gera flokkarnir fyrir afreksfólk í íþróttum? Sport „Auðvitað söknum við okkar besta og reynslumesta manns“ Körfubolti Fleiri fréttir Olís-deild karla: FH vann stórsigur í Breiðholti og önnur úrslit Uppgjörið: Haukar - Valur 29-33 | Valur heldur í við toppliðin með sigri gegn Haukum Íslendingaliðin töpuðu bæði Ísland tapaði með minnsta mun Ekki haft tíma til að spá í EM Framarar náðu toppliðunum að stigum Frábær endasprettur hjá Janusi Daða og félögum Viggó öflugur í dramatískum endurkomusigri Aron og Bjarki fögnuðu sigri gegn Viktori Gísla Hollensku stelpurnar í fínu formi fyrir EM „Mér finnst við alveg skítlúkka“ Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Þórey gaf ekki kost á sér: „Snýst um hlutverk mitt innan liðsins“ Frábær sigur hjá Orra og félögum á móti PSG Kristján lét að sér kveða þegar sigurgangan hélt áfram Súrt kvöld fyrir Íslendingaliðin í Meistaradeildinni „Langstærsti búningasamningur sem HSÍ hefur gert“ Viktor mætir Aroni: „Hann var átrúnaðargoðið mitt“ Landsliðin spila í Adidas næstu árin „Eigum ekki að setja sálfa okkur í þessa stöðu“ „Bara svona skítatilfinning“ Kemur liðsfélaga sínum til varnar: „Einn af uppáhaldsgaurunum mínum“ Tvö Íslendingalið áfram með fullt hús í Evrópudeildinni FH náði aðeins betri úrslitum á móti Gummersbach í þetta skiptið Uppgjör: Valur - Vardar 34-34 | Víti þegar leiktíminn var liðinn felldi Val Ásbjörn leikgreinir Gummersbach Valskonur til Málaga en Haukar mæta liði frá Úkraínu Snorri búinn að velja mennina sem mega spila á HM Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti