„Þetta er búinn að vera öðruvísi dagur. Segjum það,“ segir Steinar Nói í samtali við Vísi. Þótt heldur betur hafi dregið til tíðinda í dag minnir Steinar Nói á að í Grindavík hafi þetta verið ástand í nokkurn tíma.
Nötraði næstum stöðugt
„En þetta var alveg hundleiðinlegt í dag því húsið skalf og nötraði næstum stöðugt. Það var ekki mikill tími sem leið á milli skjálfta. Einn var varla búinn áður en fór að nötra.“
Skemmdir urðu á vegum í Grindavík og sömuleiðis húsnæði. Hitavatnslögn fór í sundur á hjúkrunarheimili í bænum og stærðar sprunga klauf húsið því sem næst í stundur. Þá brotnuðu munir í heimahúsum, munir eins og hundrað þúsund krónur vasi.

„Við sluppum þokkalega,“ segir Steinar Nói sem starfar sem vélstjóri hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Vísi í Grindavík.
„Það sem ekki mátti fara í gólfið var tekið niður. Það var búið að gera sjóklárt.“
Ætlaði að sofa þetta af sér í enn eitt skiptið
Steinar Nói segir hlutina hafa gerst hratt.
„Þetta blundaði kannski í manni en ég taldi nú að það væri nú hægt að sofa þetta af sér eins og undanfarna daga. Þetta voru bara svo harðir skjálftar,“ segir Steinar Nói.
Fólk á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki fundið verulega fyrir skjálftum undanfarinna vikna, þangað til í dag. Grindvíkingar hafa fundið fyrir stöðugum skjálftum í langan tíma.
„Alltaf þegar koma fyrirsagnir um að skjáflti fannst í Reykjavík þá hugsum við „æj æj, aumingja Reykvíkingar,“ segir Steinar Nói og hlær.

„Við setjum liggur við sængina ofan á skjálftana. Rúmið er ofan á þessu.“
Tilkynnt um allsherjarrýmingu
Það dró til tíðinda á ellefta tímanum í kvöld þegar ákveðið var að fara í allsherjarrýmingu í Grindavík. Nokkur fjöldi hafði þegar yfirgefið bæinn auk þess sem búið var að rýma hjúkrunarheimili og sambýli fyrir fatlað fólk.
„Ég ætlaði nú bara að sofa þetta af mér. Ætlaði að reyna að harka þetta af mér. Svo kemur tilkynningin. Þá verður maður að setjast upp í bíl og keyra út fyrir bæjarmörkin.“
Víðir Reynisson, sviðsstjóri hjá almannavörnum, sagði á upplýsingafundi í kvöld að um sögulegar aðgerðir væri að ræða. Ekki hefði verið ráðist í slíkar aðgerðir síðan Heimaey var rýmd þann 23. janúar 1973.
„Það er auðvitað hundleiðinilegt að þurfa að fara að heiman. Svo er það óvissan hvenær við fáum að fara heim aftur. Hvort það gerist eitthvað í nótt eða næstu daga.“
Þó til hafi staðið að gista í Grindavík í nótt var fjölskyldan búin að pakka. Var við öllu búin.
„Það var eiginlega komið ef að kallið skyldi koma. Svo við þyrftum ekki að gera allt.“
Steinar Nói, Sigrún Ísdal og synir þeirra tveir voru akandi á leiðinni til Grundarfjarðar þegar blaðamaður náði á þá.
„Strákarnir taka þessu svona misvel. Finnst þetta vera eitthvað sem meira en góðu hófi gegnir,“ segir Steinar Nói. Ástandið sé sérstakt.
„Það gerist ekki oft að það þarf heilt bæjarfélag að flýja.“
Amma og afi á leiðarenda
Steinar hugsar til starfsfólks Vísis hf í landvinnslu í Grindavík.
„Það eru nær allir starfsmenn hjá Vísi af erlendu bergi brotnir og hafa ekki upplifað svona lagað. Þetta tekur kannski enn meira á þá en okkur sem hafa bakland. Spurning hvort það verði vinna á mánudaginn og þá hvernig.“

Það er þó bót í máli að á leiðarenda við Grundarfjörð á Snæfellsnesi er gott fólk. Raunar það besta.
„Mamma og pabbi. Þau búa þarna. Þar eru engir jarðskjálfar fyrir vestan og gott að fá smá pásu. Ég held að við komumst ekki á betri stað held ég til að geta slakað aðeins á.“