Innlent

Veður­stofan: Kvikuflæðið marg­falt á við það sem áður hefur mælst

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hræringarnar nú eru þær mestu á Reykjanesskaga.
Hræringarnar nú eru þær mestu á Reykjanesskaga. Vísir/Vilhelm

Hraði aflögunarinnar sem mælst hefur í GPS gögnum í umbrotunum á Reykjanesskaga nú er margfaldur á við það sem mældist í fyrri jarðhræringum á Reykjanesskaga. Kvikuflæðið er sömuleiðis margfalt meira. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni. Ólíklegt er talið að kvika komi upp á hafsbotni en líkur á eldgosi á næstunni verða að teljast verulegar.

Þar kemur fram að verið sé að vinna úr þeim gögnum sem borist hafa í gærkvöldi og nótt. Markmiðið er að átta sig betur á umfangi kvikuhreyfinganna sem mælst hafa, að því er segir í tilkynningunni.

Gögnin benda til þess að kvikugangurinn nái frá Stóra-Skógsfelli í norðri og suður fyrir Grindavíkurbæ út í sjó.

Samkvæmt allra fyrstu líkanreikningum, byggt á gervitunglagögnum síðan í gærkvöldi, var dýpi niður á topp kvikugangsins norður af Grindavík áætlað um 1,5 km.

Stærð kvikugangsins margfalt á við það sem áður hefur sést

„Út frá nýjustu GPS gögnum er hraði aflögunarinnar margfaldur á við það sem mælst hefur í umbrotunum á Reykjanesskaga. Út frá þeim mælingum og gervitunglamyndum virðist stærð kvikugangsins og kvikuflæðið honum tengdum vera margfalt á við það sem áður hefur mælst í umbrotunum á Reykjanesskaga síðustu ár,“ segir Veðurstofan.

Þótt líkön bendi til þess að kvikugangurinn teygi sig út í sjó suður af Grindavík, þá er ólíklegt að kvika komi upp á hafsbotni, ef horft er til gossögunnar á þessu svæði auk þess sem gliðnun þar er mun minni en við miðbik sprungunnar við Sundhnjúkagíga.

Vísindamenn funda reglulega til að túlka þau gögn sem aflað er. Búist er við nýjum aflögunargögnum síðar í dag sem gefur skýrari mynd af þróun atburðarásarinnar. Blaðamannafundur verður haldinn í húsnæði almannavarna kl. 12 í dag þar sem farið verður betur yfir stöðu mála og mögulegar sviðsmyndir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×