Innlent

Sumir fái endur­tekið að fara meðan aðrir bíði enda­laust

Oddur Ævar Gunnarsson og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa
Kristín Arnberg skildi mikilvæga hluti eftir heima á föstudag.
Kristín Arnberg skildi mikilvæga hluti eftir heima á föstudag. Vísir

Kristín Arnberg íbúi í Grindavík er hluti af fimmtán manna fjölskyldu sem dvelur í sumarbústað í Grímsnesi. Þeim hefur reynst erfitt að fá að komast að heimili sínu sem er á hættusvæði. Hún er með hnút í maganum varðandi framtíðina.

Eins og fram hefur komið hafa Grindvíkingar fengið að sækja nauðsynjar til síns heima í dag, þriðja daginn í röð. Einhverjir íbúar hafa kvartað undan skipulagsleysi og hafa margir þurft að bíða lengi.

Hefði aldrei séð þetta fyrir

„Við vorum bara að koma núna. Við vorum loksins að fá að vita að við mættum fara,“ segir Kristín Arnberg í bílaröðinni við Grindavík í samtali við fréttastofu.

„Við erum semsagt í rauða hverfinu. Biðum í þessu kaosi hérna á Suðurstrandarveginum í gær. Við erum austur í sveit í sumarbústað, fimmtán manna fjölskylda. Við reyndum að komast heim og þá var okkur bara snúið við.“

Í gær?

„Já. Þannig að í morgun er ég búin að vera allan tímann í símanum að reyna að fá einhver svör. Af því að við fórum á föstudaginn og ætluðum bara að vera helgina. Tókum ekkert með okkur. Okkur vantar náttúrulega að komast heim að sækja föt og lyf. En þetta er náttúrulega svakalegt. Þetta er bara ástand sem maður hefði náttúrulega aldrei dottið í hug að maður ætti eftir að standa í.“

Verður að komast alla leið

Nú er löng röð núna, áttu von á því að þú komist í dag?

„Annars missi ég bara þetta litla sem ég á eftir af geðheilsunni held ég. Þannig að, mér finnst þetta bara...og að fólk skuli fá að fara tvisvar, þrisvar, að ná í heima hjá sér, en svo eru sumir, eins og við og ég þurfti að vera í símanum í allan morgun og loksins var mér tjáð að við kæmum hingað. Ég ætla bara að vona að ég komist alla leið og geti náð í það sem mig vantar.“

Hvernig líður þér með það að fá loksins að komast og sjá húsið?

„Ég náttúrulega er með hnút í maganum. ég veit ekkert hverju ég á von. En maður vonar það besta. Ég held ég eigi heima í góðu húsi,“ segir Kristín hlæjandi. Hún segir son sinn hafa kíkt á gluggana hjá sér í gær og ekki séð betur en að húsið væru í góðu standi.


Tengdar fréttir

Aldrei séð slíkar skemmdir með eigin augum

Erlendir fréttamenn við Grindavík sem fréttastofa tók tali segjast aldrei hafa orðið vitni að slíkum atburðum áður. Mikill áhugi sé á atburðunum utan landsteinanna. Bæta mætti upplýsingagjöf.

„Þetta tekur mjög á“

Anna Lára Guðnadóttir freistar þess að komast inn til Grindavíkur að sækja muni fyrir systur sína. Hún er kvíðin og stressuð að sjá hvert ástandið á húsinu er. Systir hennar fór út úr húsinu allslaus á föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×