Enski boltinn

Kim Kardashian fríkaði út þegar hún hitti Haaland

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kim Kardashian og Erling Haaland á góðri stund.
Kim Kardashian og Erling Haaland á góðri stund.

Ofurstjarnan Kim Kardashian átti erfitt með að hemja sig þegar hún hitti norska fótboltamanninn Erling Haaland.

Kardashian og Haaland hittust á viðburði á vegum Dolce and Gabbana á Ítalíu. Saint, sonur hennar og fyrrverandi eiginmannsins, Kanye West, er mikill fótboltaáhugamaður.

„Ég var á Ítalíu og sá Erling Haaland og fríkaði út því ég vissi að sonur minn yrði svo spenntur,“ sagði Kardashian í viðtali við GQ.

„Síðan var ég eins og einhver lúði og hringdi í Saint á FaceTime og sagði: Þú getur aldrei giskað á hvern ég hitti.“

Kardashian hefur smitast af fótboltaáhuga sonarins og hefur verið dugleg að fara með hann á leiki hjá átrúnaðargoðunum eins og Cristiano Ronaldo, Lionel Messi og Kylian Mbappé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×