Tilnefningin er fyrir vel heppnaðar framkvæmdir annars vegar í nýrri mathöll, Kúmen, og hins vegar í lúxusbíósal sem smíðaður var upp úr þaki verslunarmiðstöðvarinnar.
„Tilnefning til verðlauna Revo er mikill heiður. Það var mjög djörf hugmynd að byggja lúxussal upp úr þaki Kringlunnar en sú áskorun arktiekta og verkfræðinga gekk fullkomlega upp. Sömu sögu er að segja um Kúmen, breytingar þar eru gríðarlega vel heppnaðar og ánægja viðskiptavina ótvíræð. Við þökkum fyrir það traust sem okkur hjá THG var sýnt við hönnun og framkvæmd eins stærsta og krefjandi verkefnis sem Kringlan hefur ráðist í,“ segir Inga Rut Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kringlunnar.

Í tilkynningu kemur fram að tilgangurinn með verðlaununum sé að vekja athygli á bestu og árangursríkustu breytingum fasteigna. Breytingum sem miða af því að uppfylla betur þarfir viðskiptavina og styrkja svæði enn frekar sem vinsælan viðkomustað. Verðlaunin verða kynnt þann 6. desember við hátíðlega athöfn í London.
„Við erum mjög stolt af þessari miklu viðurkenningu í umhverfi mikillar samkeppni. Viðskiptavinir kunna vel að meta þessar breytingar og Kúmen er þegar orðinn mjög vinsæll áfangastaður Kringlu– og bíógesta,“ segir Inga Rut ennfremur.
Við endurbætur hæðarinnar naut Kringlan ráðgjafar breska félagsins M Worldwide, sem sérhæfir sig í lífstílstengdum verkefnum og THG Arkitekta. Paolo Gianfrancesco frá THG leiddi verkefnið sem stóð yfir í tæp tvö ár.