Kynningarfundurinn hefst klukkan 13:30 og hann má sjá í beinu streymi í spilaranum hér að neðan:
Í fréttatilkyunningu um viðburðinn segir að markmiðið hafi verið að varpa ljósi á tækifæri til bættrar orkunýtni hér á landi. Kortlagðar hafi verið þær aðgerðir sem eru tæknilega og fjárhagslega framkvæmanlegar.
Danska ráðgjafarstofan Implement hafi unnið skýrsluna, en hún búi yfir mikilli sérfræðiþekkingu á orkumálum og orkunýtni.
Á streymisfundi verðir farið yfir helstu niðurstöður skýrslunnar og hvað þær þýða fyrir orkumál.
Dagskrá fundarins:
- 13:30 Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra, opnar fundinn.
- 13:40 Hvað er orkunýtni? Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðsstjóri loftslagsbreytinga og nýsköpunar hjá Orkustofnun.
- 13:50 Fugl í hendi - verðmætin í minni sóun - Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags og grænna lausna hjá Landsvirkjun.
- 14:00 Tækifæri til bættrar raforkunýtni á Íslandi, Martin Bo Hansen, meðeigandi Implement og sérfræðingur í orku- og loftslagsmálum kynnir niðurstöður greiningar á tækifærum til bættrar raforkunýtni á Íslandi.