Viðskipti innlent

At­vinnu­rek­endur í Grinda­vík fá að­stoð í hús­næðis­leit

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Fyrirtæki í Grindavík geta óskað eftir aðstoð við húsnæðisleit.
Fyrirtæki í Grindavík geta óskað eftir aðstoð við húsnæðisleit. Vísir/RAX

Almannavarnir hafa komið á fót sérstakri þjónustugátt þar sem atvinnurekendur og forsvarsfólk fyrirtækja með starfsemi í Grindavík geta óskað eftir aðstoð við að finna húsnæði fyrir starfsemi sína.

Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að hægt sé að óska eftir aðstoð á island.is/grindavík. Í sérstakri þjónustugátt sé hægt að skrá helstu upplýsingar, svo sem tegund starfsemi, lágmarksþörf í fermetrum talið og fjölda starfsfólks hjá fyrirtækinu sem þarf starfsaðstöðu í húsnæðinu.

Forsvarsfólk fyrirtækja sem vantar starfsaðstöðu er hvatt til að skrá fyrirtæki sín í þjónustugáttina og verður eftir fremsta megni reynt að finna laust húsnæði eða aðstöðu, að því er segir í tilkynningu almannavarna.

Þar segir að þjónustugáttin sé hlut af starfsemi þjónustumiðstöðvar Grindvíkinga. Sú er rekin í Tollhúsinu við Tryggvagötu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×