Aðeins þeir sem þegar er búið að ræða við fá að fara inn í bæinn, aðrir ekki.
Aðkomuleið verður um Suðurstrandaveg.
„Íbúar eru upplýstir um framkvæmdina og hvenær þeir eiga að mæta við gatnamót Grindavíkurvegar og Krýsuvíkurvegar. Íbúar verða fluttir með viðbragðsaðilum frá söfnunarstað utan Grindavíkur og frá heimilum í Grindavík til baka,“ segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
„Til athugunar fyrir íbúa:
- Ekki fara ef þú þarft ekki nauðsynlega að fara
- Skráið niður á lista það sem þið hyggist sækja áður en lagt er af stað
- Munið eftir húslykli
- Poka eða annað undir muni
- Íbúar hafa stuttan tíma inni á heimilum“
Hægt er að sækja um að fara heim á island.is.