Enski boltinn

Leik­menn United dauð­þreyttir eftir undir­búnings­tíma­bilið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Erik ten Hag virðist hafa gengið nærri leikmönnum Manchester United með miklu álagi á undirbúningstímabilinu.
Erik ten Hag virðist hafa gengið nærri leikmönnum Manchester United með miklu álagi á undirbúningstímabilinu. getty/James Gill

Sumir leikmenn Manchester United kenna erfiðu undirbúningstímabili um slaka byrjun í vetur og mikil meiðsli í herbúðum liðsins.

The Guardian greinir frá því að leikmenn United hafi hreinlega verið þreyttir eftir undirbúningstímabilið og fundist álagið hjá Erik ten Hag, knattspyrnustjóra liðsins, vera of mikið. 

United spilaði átta leiki á 25 dögum í fimm löndum á undirbúningstímabilinu auk þess sem æfingar voru erfiðari en síðasta sumar.

Mikil meiðsli hafa herjað á United í upphafi tímabilsins og nokkrir leikmenn rekja þau til mikils álags á undirbúningstímabilinu. 

Samkvæmt frétt the Guardian voru leikmenn United jafn þreyttir eftir undirbúningstímabilið og eftir síðasta tímabil. Þeir hafa þó ekki kvartað beint við Ten Hag.

United er í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið hefur unnið fjóra af síðustu fimm deildarleikjum sínum. Næsti leikur United er gegn Everton á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×