Innlent

Mesta virknin á­fram nærri Sýlingarfelli og Hagafelli

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Frá Meradölum á Reykjanesi. þar sem það gaus árið 2022.
Frá Meradölum á Reykjanesi. þar sem það gaus árið 2022. Vísir/Vilhelm

Áfram er mesta jarðskjálftavirknin á Reykjanesskaga nærri Sýlingarfelli og Hagafelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Þar kemur fram að jarðskjálftavirkni hafi verið nokkuð stöðug síðustu daga. Mældust um fimm hundruð skjálftar á sólarhring nærri kvikuganginum á Reykjanesi.

Innflæði kviku áfram undir Svartsengi

Veðurstofan segir að um miðnætti í dag hafi jarðskjálftahviða hafist nærri Sýlingarfelli og virkni aukist tímabundið í rúma klukkustund. Um 170 jarðskjálftar mældust í hviðunni og var mest um að ræða smáskjálfta en einn mældist 3,0 að stærð.

Þá segir í tilkynningunni að út frá aflögunargögnum frá GPS mælum og gervitunglum sjáist að þensla haldi áfram við Svartsengi. Aflögun mælist enn nærri kvikuganginum.

Þó mældust engar breytingar á GPS mælingum í tengslum við jarðskjálftahrinuna í nótt. Bæði skjálfta- og aflögunargögn benda til þess að innflæði kviku haldi áfram bæði undir Svartsengi og í miðju kvikugangsins. Skjálftahrinan í nótt gæti verið vísbending um aukinn þrýsting í ganginum.

Storknun gæti tekið nokkra mánuði

Í ljósi þessa og samtúlkun nýjustu gagna eru áfram taldar líkur á eldgosi yfir kvikuganginum á meðan innflæði kviku heldur áfram. Mesta hættan á að kvika komi upp er áfram á svæðinu milli Hagafells og Sýlingarfells. Hættumatskort sem Veðurstofan gaf út 22. nóvember er enn í gildi.

Frekari líkanreikningar hafa verið gerðir til að áætla umfang kvikugangsins sem myndaðist 10. nóvember. Þeir líkanreikningar benda til þess að hluti kvikugangsins gæti verið breiðari en áætlað var í fyrstu. Gróft áætlað gæti storknun breiðasta hluta gangsins því tekið nokkra mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×