Viðskipti innlent

Kram­búð og Huppa í Búðarkór í stað Nettó

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Haukur Benediktsson, rekstrarstjóri Krambúðarinnar.
Haukur Benediktsson, rekstrarstjóri Krambúðarinnar.

Krambúð hefur verið opnuð í Búðakór, þar sem Nettó var áður til húsa. Jafnframt mun Ísbúð Huppu verða opnuð í rýminu í janúar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkaupum. Þar segir að með Krambúð fái íbúar hverfisins sveigjanlegri opnunartíma og aukin þægindi. Segir í tilkynningunni að í versluninni verði bæði bakarí með nýbökuðu brauði og nammibar.

„Kórahverfið er hverfi sem hefur verið í mikilli uppbyggingu síðustu ár sem virðist ætla að halda áfram. Íbúar eru að miklu leyti fjölskyldufólk á ferðinni sem við vitum að Krambúðin getur þjónað vel. Síðan er alveg frábært að fá Ísbúð Huppu með okkur í húsið en velgengni Huppu hefur verið mikil síðustu ár enda bjóða þau upp á hágæða vöru sem hentar allri fjölskyldunni,“ segir Haukur Benediktsson, rekstrarstjóri Krambúðarinnar.

Frá nýrri Krambúð í Búðarkór.

„Við erum stöðugt að meta hvaða verslanamynstur hentar hvaða staðsetningu best. Í Búðakór sáum við að húsnæðið hentaði ekki lengur Nettó þar sem það var of lítið fyrir vöruúrval þeirrar verslunar. Við sáum þó að húsnæðið myndi henta mjög vel fyrir Krambúð og erum við mjög spennt að opna þessa verslun í Búðakór í dag. Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu hverfisins,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa.

Þá segir í tilkynningunni að í dag föstudaginn 1. desember kl. 12, muni Krambúðin slá upp opnunarveislu í nýrri verslun í Búðakór. Þar verður kaffi og með því í boði ásamt vörum á tilboðsverði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×