Þessir eru tilnefndir til hinna Íslensku bókmenntaverðlauna Jakob Bjarnar skrifar 1. desember 2023 16:42 Með fullri virðingu fyrir öðrum flokkum er það ævinlega skáldsagnaflokkurinn sem mesta athygli vekur. Þessi fimm fá tilnefningu í ár: Steinunn Sigurðardóttir, Vilborg Davíðsdóttir, Bjarni M. Bjarnason, Auður Ava Ólafsdóttir, og Eiríkur Örn Norðdahl. Tilnefningar til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans og Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2023 voru kynntar nú rétt í þessu, í Eddu, húsi íslenskra fræða.
Í tilkynningu segir að bæði Blóðdropinn og Hin íslensku bókmenntaverðlaun, verði afhent um mánaðamótin janúar-febrúar á komandi ári af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni. Formenn dómnefndanna fjögurra, Hjalti Freyr Magnússon, Kristján Sigurjónsson, Steingerður Steinarsdóttir og Steinunn Valdís Óskarsdóttir munu koma saman ásamt forsetaskipuðum formanni, Kristínu Ingu Viðarsdóttur, og velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk. Félag íslenskra bókaútgefenda kostar verðlaunin. Íslensku bókmenntaverðlaunin voru fyrst veitt árið 1989 og má sjá yfirlit yfir verðlaunahafa fyrri ára hér. Verðlaununum er ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur hvers árs. Þetta er í 35. sinn sem tilnefnt er til verðlaunanna. Gaman er frá því að segja að í flokki barna- og ungmennabóka er að finna yngsta tilefnda skáldið frá upphafi; Embla Bachmann er aðeins 17 ára gömul. Félag íslenskra bókaútgefenda gerði samkomulag við Íslenska glæpafélagið árið 2022 um að taka yfir verklega framkvæmd Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans ásamt því að kosta verðlaunin með sama hætti og Íslensku bókmenntaverðlaunin. Handhafi Blóðdropans verður, líkt og áður, framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins. Hér neðar má finna upplýsingar um hin tilnefndu verk og með fylgja umsagnir dómnefnda. Tilnefnd til Blóðdropans Steindór Ívarsson Blóðmeri Útgefandi: Storytel og Sögur útgáfa Spennandi frásögn af rannsókn á dularfullum og óhugnanlegum morðum í Reykjavík nútímans, sem tengjast ódæðisverki í fortíðinni. Vel er sagt frá framvindu rannsóknarinnar og hvernig ógnvekjandi atburðir grípa inn í hversdagstilveru fólks, sem virðist ofurvenjulegt. Spennunni er haldið fram á síðustu blaðsíðu. ... Stefán Máni Borg hinna dauðu Útgefandi: Sögur útgáfa Vel heppnaður spennutryllir þar sem ein litríkasta persóna íslenskra glæpasagna leysir úr flóknu sakamáli í kappi við tímann. Sögunni vindur áfram með myndrænum og áreynslulausum hætti. Sjónarhorninu er einnig beint að óþolandi þjóðfélagsmeini og krefjandi fjölskyldulífi lögreglumannsins. Afraksturinn er vönduð glæpasaga sem heldur lesandanum á tánum frá upphafi til enda. ... Eva Björg Ægisdóttir Heim fyrir myrkur Útgefandi: Veröld Vel sögð saga með fjölbreyttu, breysku persónugalleríi og slunginni atburðarás. Sögusviðið er áhugavert og sagan er í senn glæpa- og spennusaga, sálfræðitryllir, fjölskyldudrama og íslensk samfélagslýsing á seinni hluta síðustu aldar. Höfundur sáir fjölda efasemda í hug lesanda þannig að hann grunar allt og alla söguna á enda. ... Skúli Sigurðsson Maðurinn frá São Paulo Útgefandi: Drápa Nýstárleg saga þar sem sögulegum atburðum og raunverulegum persónum úr mesta hildarleik sögunnar er fléttað saman við íslenskt samfélag á 8. áratug siðustu aldar. Höfundur vandar vel til verka og sagan hefur yfir sér trúverðugan blæ þrátt fyrir að atburðarásin sé framandi. Spennandi og grípandi frásögn, sem lesandinn getur vart lagt frá sér fyrr en ráðgátan leysist. ... Arnaldur Indriðason Sæluríkið Útgefandi: Vaka Helgafell Firnagóð flétta þar sem þræðir spillingar við úrlausn gamals morðmáls vefast saman við tortryggni kaldastríðsáranna og manndráps í nútímanum. Umhverfis- og samfélagslýsingar áhrifaríkar og persónusköpun hreint afbragð. ... Dómnefnd skipuðu: Björn Ingi Óskarsson, Kristján Sigurjónsson, formaður dómnefndar, og Mjöll Snæsdóttir. Tilnefnd í flokki barna- og ungmennabóka Gunnar Helgason og Rán Flygenring myndhöfundur Bannað að drepa Útgefandi: Mál og menning Stórkostlega fyndin, einlæg og átakanleg frásögn sem spilar á allan tilfinningaskalann. Sagan, sem tekur áreynslulaust á málefnum líðandi stundar, er skemmtilega myndlýst, auðlesin og persónusköpun höfundar einstök. ... Sævar Helgi Bragason og Elías Rúni myndhöfundur Vísindalæsi - Hamfarir Útgefandi: JPV útgáfa Hnyttin og fræðandi bók um áhrifamátt hamfara, svo sem tilurð tungls og jarðar, þróun súrefnis og örlög risaeðla. Einstaklega vel myndlýst frásögn sem hvetur til umhugsunar um örlög jarðarinnar og hvort við getum enn haft einhver áhrif. ... Hildur Knútsdóttir Hrím Útgefandi: JPV útgáfa Vel skrifuð og heillandi þroskasaga sem fjallar um erfiða lífsbaráttu, hugrekki, ástina og trúna á sjálfan sig í heimi sem er svo nálægt okkur en samt svo fjarri. Höfundur býr til mjög trúverðugan hugarheim og tekst að halda lesandanum spenntum frá upphafi til enda. ... Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir Mömmuskipti Útgefandi: Mál og menning Frumleg saga sem fjallar á meinfyndinn en einlægan hátt um líf barna hinna svokölluðu áhrifavalda. Hvers virði er einkalífið? Er hægt að setja það upp í súlurit og kökur? Hve mikið ætlum við að láta snjalltækin stjórna lífi okkar? ... Embla Bachmann Stelpur stranglega bannaðar! Útgefandi: Bókabeitan Einföld en áhrifarík saga sem fjallar á lipran hátt um flóknar tilfinningar. Dásamleg og djúp persónusköpun með skemmtilegum lýsingum sem hrífa lesandann með sér. Glæsileg frumraun höfundar. ... Dómnefnd skipuðu: Ásgerður Júlíusdóttir, Hjalti Freyr Magnússon, formaður dómnefndar, og Hrönn Sigurðardóttir Erludóttir. Tilnefnd í flokki fræðibóka og rita almenns efnis Þórður Helgason Alþýðuskáldin á Íslandi - Saga um átök Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag Tímamótaverk og mikill fróðleikur saman dreginn um efni sem hefur ekki mikið verið fjallað um til þessa. Vel skrifuð bók. ... Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg - Baráttusaga Guðrúnar Jónsdóttur Útgefandi: Vaka Helgafell Áhrifarík bók þar sem Guðrún hlífir hvorki sjálfri sér né öðrum. Skrifuð af ástríðu fyrir efninu og fjallar um ævistarf konu í þágu kvenna. ... Elsa E. Guðjónsson og Lilja Árnadóttir Með verkum handanna - Íslenskur refilsaumur fyrri alda Útgefandi: Þjóðminjasafn Íslands Glæsileg bók og ríkulega myndskreytt. Fallegt og veglegt rit sem vitnar um ríkt menningarstarf kvenna á fyrri tímum. Í bókinni er fjallað á greinargóðan hátt um þann stórbrotna menningararf sem klæðin eru. ... Haraldur Sigurðsson Samfélag eftir máli - Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi Útgefandi: Sögufélag Glæsilegt verk þar sem höfundi tekst að fjalla um breytinguna úr sveit í borg á aðgengilegan og læsilegan hátt. Vandað yfirlitsverk um skipulagsmál. ... Guðmundur Magnússon Séra Friðrik og drengirnir hans – Saga æskulýðsleiðtoga Útgefandi: Ugla útgáfa Yfirgripsmikil bók sem byggir á ítarlegri rannsóknarvinnu og skoðun á viðamiklum skjala og bréfasöfnum. Höfundur lætur heimildirnar tala sínu máli og lætur lesanda eftir að draga ályktanir. ... Dómnefnd skipuðu: Bessý Jóhannsdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður dómnefndar og Þorvaldur Sigurðsson. Tilnefnd í flokki skáldverka Steinunn Sigurðardóttir Ból Útgefandi: Mál og menning Margslungin, þétt og spennandi örlagasaga. Djúpri sorg og söknuði er lýst af einstakri næmni og listfengi. Persónusköpunin er einkar vel heppnuð og tengingu manns og náttúru gerð skil á athyglisverðan hátt. Ólgandi tilfinningar persóna eiga sér samhljóm í náttúruöflunum þegar sár leyndarmál koma í ljós. ... Auður Ava Ólafsdóttir DJ Bambi Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa Áhrifamikil skáldsaga skrifuð af miklu næmi og innsæi. Höfundur veltir upp heimspekilegum tilvistarspurningum af mennsku og hlýju. Ljóðrænn textinn er hrífandi fallegur og kíminn. Persónurnar eru eftirminnilegar og smeygja sér inn í hjörtu lesenda. Leikandi létt, listræn og hugmyndarík saga um óvænt kraftaverk hversdagslífsins á línunni milli lífs og dauða. ... Bjarni M. Bjarnason Dúnstúlkan í þokunni Útgefandi: Veröld Vel uppbyggð og fallega skrifuð söguleg skáldsaga. Höfundi tekst að skapa dulúð og heillandi heim þar sem allt getur gerst. Frumlegur söguþráður og skemmtileg tengsl við galdratrú fortíðarinnar og íslenskan þjóðsagnaarf. Persónur eru trúverðugar og sagan bæði áhrifamikil og eftirminnileg. ... Vilborg Davíðsdóttir Land næturinnar Útgefandi: Mál og menning Vel skrifuð, þrælspennandi og áhugaverð bók. Heimildavinna skilar lifandi lýsingu á menningu, lífsháttum og ferðum fornmanna sem hrífur lesanda með sér. Vilborg sækir í íslenskan sagnabrunn og má segja að Land næturinnar sé kóróna á sérlega vönduðu höfundarverki undanfarna áratugi. ... Eiríkur Örn Norðdahl Náttúrulögmálin Útgefandi: Mál og menning Söguleg skáldsaga, full af húmor og skrifuð af mikilli orðgnótt. Söguna einkennir rífandi frásagnargleði, listfengi í stíl og frumlegur söguþráður. Þrátt fyrir fjörið og léttleikann er hér tekist á við stórar heimspekilegar spurningar svo úr verður innhaldsríkt og eftirtektarvert skáldverk. ... Dómnefnd skipuðu: Guðrún Birna Eiríksdóttir, Hlynur Páll Pálsson og Steingerður Steinarsdóttir sem jafnframt var formaður dómnefndar.
Bókaútgáfa Bókmenntir Auglýsinga- og markaðsmál Íslensku bókmenntaverðlaunin Mest lesið Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Tíska og hönnun Dularfull tíst Dylans vekja furðu Lífið Flytja frá Bandaríkjunum eftir sigur Trump Lífið Davíð Lúther og Linda selja sælureitinn með gullfiskum Lífið Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Tónlist Átta ár án áfengis og fíkniefna Lífið Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Svava Rós og Hinrik eiga von á dreng Lífið „Laugarnesið hafði mjög mikil áhrif á mig í uppvexti“ Lífið Fer að sofa klukkan fjögur og getur sveiflast um þrjátíu kíló Lífið Fleiri fréttir Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Sjá meira