Skagafjörður er sveitarfélag, sem varð til 6. júní 1998 við sameiningu 11 sveitarfélaga í Skagafirði. Sauðárkrókur er lang stærst bærinn en svo eru það þéttbýlisstaðirnir Hofsós, Hólar í Hjaltadal og Varmahlíð, sem tilheyra sveitarfélaginu.
Sigfús Ingi Sigfússon er sveitarstjóri í Skagafirði.
„Hér er lífið bara mjög gott nú sem endranær. Það er uppgangur hér og talsverð fjölgun íbúa í öllum póstnúmerum, bæði dreifbýli og þéttbýli. Hér vantar í rauninni fleiri hendur til starfa og við glímum við það eins og önnur sveitarfélög að fylgja á eftir þessum vexti með því að fjölga íbúðum þannig að fólk geti flutt hingað. Ætli okkur hafi ekki fjölgað um svona 80 manns á þessu ári og gæti verið enn meira eins og ég segi með auknum byggingarhraða og framkvæmdum,“ segir Sigfús Ingi.

En hvaða fólk er aðallega að flytja í Skagafjörðinn?
„Það er það gleðilega að þetta eru bæði heimamenn, sem eru kannski að snúa aftur eða fólk, sem hefur einhverja tengingu hingað en svo er bara í vaxandi mæli fólki að flytja hingað, sem sér kosti dreifbýlis umfram þéttbýlis, sem hefur enga tengingu við staðinn og líkar hér mjög vel og festir rætur.“
Og atvinnumálin, hvernig er staðan þar?
„Já, ætli við séum ekki með eitthvert læsta atvinnuleysið á landinu. Eins og ég segi, hér vantar bara hendur og það er margt fram undan á næsta ári, bæði af hálfu okkar sveitarfélagsins í framkvæmdum og einnig annarra aðila,“ segir Sigfús Ingi.