Vand­ræði Tottenham halda á­fram

James Ward-Prowse skoraði sigurmark West Ham.
James Ward-Prowse skoraði sigurmark West Ham. Nigel French/Sportsphoto/Allstar via Getty Images

Eftir frábæra byrjun á tímabilinu þar sem Tottenham tapaði ekki leik í fyrstu tíu umferðunum í ensku úrvalsdeildinni er liðið nú án sigurs í síðustu fimm leikjum eftir 1-2 tap gegn West Ham í Lundúnaslag í kvöld.

Heimamenn í Tottenham byrjuðu leikinn mun betur, og voru í raun sterkari aðilinn allan tímann, og Christian Romero kom liðinu yfir strax á elleftu mínútu þegar hann skallaði hornspyrnu Pedro Porro í netið.

Þrátt fyrir að leikurinn hafi að miklu leyti farið fram í kringum vítateig West Ham tókst heimamönnum ekki að finna netið í annað skipti fyrir hálfleik og staðan var því 1-0 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja.

Þrátt fyrir áframhaldandi yfirburði heimamanna í síðari hálfleik voru það gestirnir sem jöfnuðu metin þegar Jarrod Bowen setti boltann í netið eftir að boltinn hafði skoppað á milli manna inni í vítateig Tottenham og staðan orðin 1-1 gegn gangi leiksins.

Það er ekki alltaf spurt að því hver gangur leiksins er og gestirnir bættu öðru marki við á 74. mínútu þegar James Ward-Prowse nýtti sér mistök í vörn Tottenham og tryggði gestunum þar með mikilvægan sigur, 1-2.

Eftir sigurinn er West Ham með 24 stig í níunda sæti deildarinnar eftir 15 umferðir, þremur stigum á eftir Tottenham sem situr í fimmta sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira