Heimamenn í KA skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins, en eftir það voru Selfyssingar sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Gestirnir að sunnan náðu tveggja marka forystu í stöðunni 6-8 þegar fyrri hálfleikur var rétt rúmlega hálfnaður og liðið leiddi með þremur mörkum í hálfleik, staðan 12-15.
Akureyringar skoruðu hins vegar fyrstu þrjú mörk seinni hálfleiks og jöfnuðu metin. Selfyssingar lögðu þó ekki árar í bát og hrifsuðu forystuna til sín á ný með góðum kafla. Gestirnir litu aldrei um öxl eftir það og unnu að lokum mikilvægan tveggja marka sigur, 28-30.
Einar Sverrisson var markahæsti maður vallarins með ellefu mörk fyrir Selfyssinga, en Vilius Rasimas átti einni stórleik í marki gestanna og varði 17 skot. Ott Varik var atkvæðamestur í liði heimamanna með níu mörk.
Þrátt fyrir sigurinn sitja Selfyssingar enn á botni deildarinnar, nú með sex stig, aðeins einu stigi frá öruggu sæti. KA situr í sjöunda sæti með tíu stig.