Wall Street Journal hefur þetta eftir bandarískum heimildarmönnum sínum en fregnir höfðu áður borist af því að Ísraelar hefðu flutt stórar dælur til Shati-flóttamannabúðanna í Gasaborg.
Í frétt WSJ segir að um sé að ræða eina af nokkrum leiðum sem Ísraelar noti til að eyðileggja göng Hamas. Einnig er notast við loftárásir, fljótandi sprengiefni og hunda og dróna.
Hamas-liðar hafa grafið göng víðsvegar undir Gasaströndinni í gegnum árin. Þessi göng eru notuð til að flytja vígamenn og vopn án þess að Ísraelar sjái til, auk þess sem leiðtogar Hamas eru taldir halda til þar og gíslar samtakanna eru sömuleiðis í haldi þar.
Sjá einnig: Hyggjast eyðileggja umfangsmikið gangakerfi Hamas undir Gasa
Dýpstu göngin sem hafa fundist voru á um sjötíu metra dýpi. Þau eru iðulega ekki nema tveggja metra há og um metri á breidd.
Einn vel staðsettur vígamaður gæti haldið aftur af fjölmörgum ísraelskum hermönnum í þessum göngum.
Ísraelar hafa þjálfað sérstakar sveitir í því að berjast í göngum. Aðrar eru þjálfaðar í að finna göng og kanna þau nánar. Þá hafi þeir þróað sérstakar talstöðvar og staðsetningabúnað sem virkar neðanjarðar, og nætursjónauka sem nota einnig hitaskynjara til að sjá í algeru myrkri fyrir þessar sveitir.
Felldu minnst níu hermenn í umsátri
Þá nota vígamenn göngin til að stinga upp kollinum á óvæntum stöðum og gera skyndiárásir á ísraelska hermenn eða sitja fyrir þeim. Hamas-samtökin hafa birt fjölmörg myndbönd af slíkum árásum á samfélagsmiðlum frá því átökin hófust.
Ísraelskir fjölmiðlar sögðu frá því í morgun að minnst níu hermenn hefðu falið í nýlegu umsátri Hamas í Gasaborg á norðanverðri Gasaströndinni. Þeirra á meðal voru ofursti, undirofursti og major. Í heildina hafa 115 ísraelskir hermenn fallið í átökunum. Ofurstinn Ben Basat er sagður vera hæst setti ísraelski hermaðurinn sem hefur fallið í átökunum.
Í frétt Times of Israel segir að hermennirnir hafi verið að framkvæma leit í nokkrum byggingum á norðanverðri Gasaströndinni, á svæði sem talið er vera víggirt af Hamas-liðum. Hermennirnir fundu gangnainngang í byggingunum en þar sátu vígamenn fyrir fjórum hermönnum.
Basast leiddi fleiri hermenn í að reyna að ná til hinna fjögurra og kom til harðra átaka.
Ísraelski herinn birti í morgun myndefni frá svæðinu, sem sjá má hér að neðan.
The IDF releases footage showing troops of the Golani Brigade operating in Gaza City's Shejaiya neighborhood in recent days. Yesterday, nine soldiers were killed during an ambush and battle against Hamas operatives in the area. pic.twitter.com/o1QQ90PvrT
— Emanuel (Mannie) Fabian (@manniefabian) December 13, 2023
Gasaströndin er eitthvert þéttbýlasta svæði heimsins. Það er um fjörutíu kílómetrar að lengd og um tíu kílómetrar að breidd, eða 365 ferkílómetrar, og þar búa um 2,3 milljónir manna. Um 85 prósent þeirra hafa þurft að flýja heimili sín á undanförnum vikum og stór hluti Gasastrandarinnar er í rúst.
Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á Gasa, sem Hamas stjórna, hafa minnst 18.400 manns fallið í loftárásum Ísraela og vegna landhernaðar á svæðinu. Þar af eru flestir óbreyttir borgarar.