Erlent

Varar við hruni hjálpar­starfs á Gasa­ströndinni

Samúel Karl Ólason skrifar
Umfangsmiklar tjaldbúðir hafa risið við byggingar Sameinuðu þjóðanna á suðurhluta Gasastrandarinnar.
Umfangsmiklar tjaldbúðir hafa risið við byggingar Sameinuðu þjóðanna á suðurhluta Gasastrandarinnar. AP/Mohammed Dahman

Yfirmaður Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segir ástandið fyrir íbúa Gasastrandarinnar vera sambærilegt því að búa í helvíti. UNRWA ber ábyrgð á því að dreifa neyðaraðstoð til íbúa Gasastrandarinnar.

Philippe Lazzarini sagði á ráðstefnu í Genf í gær að stofnun hans væri að hruni komin.

„Ég hef ekkert svar fyrir fimm barna föður í Rafah sem spurði mig hvernig hann og börn hans ættu að lifa á einni baunadós í þrjá daga,“ sagði Lazzarini í gær, samkvæmt frétt Washington Post.

Rafah er bær á sunnanverðri Gasaströndinni þar sem talið er að um milljón manna haldi til. Flestir þeirra hafa þurft að flýja heimili sín vegna átaka á norðanverðri Gasaströndinni. Lazzarini sagði að margir af starfsmönnum UNRWA taki börn sín með sér í vinnuna, til að tryggja að þau séu örugg saman, eða að þau deyi saman.

Í viðtali við Al Jazeera sagði Lazzarini nýverið að ef starfsemi UNRWA á Gasaströndinni stöðvaðist, myndu Palestínumenn líta á það sem enn ein svik alþjóðasamfélagsins.

Gasaströndin er eitthvert þéttbýlasta svæði heimsins. Það er um fjörutíu kílómetrar að lengd og um tíu kílómetrar að breidd, eða 365 ferkílómetrar, og þar búa um 2,3 milljónir manna. Um 1.9 milljón þeirra hafa þurft að flýja heimili sín á undanförnum vikum og stór hluti Gasastrandarinnar er í rúst.

Heilbrigðisráðuneyti Gasastrandarinnar, sem stýrt er af Hamas-samtökunum, segir minnst 18.600 manns hafa fallið í árásum Ísraela eða vegna hernaðar á jörðu niðri. Ráðuneyti greinir ekki milli óbreyttra borgara eða vígamanna. Þúsundir til viðbótar eru týnd og talin liggja í rústum á Gasa.

Lazzarini segir að fólk hafi hópast að byggingum Sameinuðu þjóðanna á Gasaströndinni og þar ríki mikil óreiða. Fólk sé hungrað og örvinglað.

152 flutningabílum með neyðarbirgðum og eldsneyti var ekið inn á Gasaströndina frá Egyptalandi í gær en Lazzarini segir mikla óreiðu ríkja þegar fólk sér þessa flutningabíla. AP fréttaveitan segir Sameinuðu þjóðirnar eiga erfitt með að dreifa neyðaraðstoðinni til íbúa og þá sérstaklega eftir að Ísraelar gerðu einnig innrás í suðurhluta Gasastrandarinnar.

Engin aðstoð hefur borist til norðurhluta Gasa frá því innrásin þar hófst.

Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir að sótt verði fram til fullnaðarsigurs á Gasa svæðinu þrátt fyrir þrýsting alþjóðasamfélagsins.


Tengdar fréttir

Dæla sjó í göng Hamas

Ísraelskir hermenn eru byrjaðir að dæla sjó í neðanjarðargöng Hamas-samtakanna á Gasaströndinni. Vonast er til þess að þannig sé hægt að svæla vígamenn úr göngunum og eyðileggja þau.

Vopnahléstillagan samþykkt og Ísland kaus með

Atkvæðagreiðslu á neyðarfundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um kröfu um tafarlaust vopnahlé er nú lokið. Tillagan var samþykkt með 153 atkvæðum gegn tíu en 23 þjóðir sátu hjá. Ísland var meðal þeirra þjóða sem samþykktu tillöguna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×