Innlent

Spenntur að halda jólin inni­lokaður og í friði

Ólafur Björn Sverrisson og Kristín Ólafsdóttir skrifa
Ívar kveðst spenntur að halda jólin innilokaður á Flateyri.
Ívar kveðst spenntur að halda jólin innilokaður á Flateyri. vísir

Snjóflóð hafa fallið í grennd við bæi og helstu vegir eru ýmist ófærir eða lokaðir á Vestjörðum. Björgunarsveitarmaður á Flateyri segir alls ekkert ferðaveður á svæðinu. Hann kippir sér ekkert upp við að halda jólin innilokaður. Óvissustig er áfram í gildi en veðrið á að vera gengið niður að mestu í kvöld.

Veðurstofan lýsti yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum í gær, sem tók gildi á miðnætti. Eins og sést frá myndum úr Bolungarvík í morgun geisar norðanstormur og hríð á svæðinu.  Snjóflóð féll um Eyrarhlíð í gær, milli Ísafjarðar og Hnífsdals, og veginum lokað í kjölfarið. 

Óvissustigi var svo einnig lýst yfir á Norðurlandi í morgun; snjóflóð féll ofan Siglufjarðar í nótt og tvö flóð fóru yfir Siglufjarðarveg í gærkvöldi, veginum hefur verið lokað. Veðurstofan telur þó hvergi hættu steðja að í byggð.

Halda jól innilokuð

Öllum helstu vegum á Vestfjörðum hefur einnig verið lokað eða þeir ófærir, eins og sést á þessu korti Vegagerðarinnar. Varaformaður björgunarsveitarinnar Sæbjargar á Flateyri var staddur í snjómokstursbíl þegar fréttastofa náði af honum tali í morgun.

„Ég ákvað að stinga í gegnum hringinn svokallaða á Flateyri, svo fólk komist um, komist í jólasundið,“ segir Ívar.

Ívar segir Vestfirðinga almennt rólega yfir snjóflóðahættunni, fólk hafi ekki áhyggjur af stöðunni enn þá. Veður sé þó sannarlega slæmt og alls ekki ráðlegt að vera á ferðinni.

„Það gerir blint á milli og ekkert ferðaveður þannig það er ekkert verið að moka. Flateyrarvegi var lokað í gær klukkan ellefu vegna þess. Þannig að við erum bara föst á Flateyri.“

En hvernig er að halda jól svona innilokuð?

„Mér finnst það eiginlega bara geggjað, að veðrið sé bara slæmt, þá getur maður bara verið inni í rólegheitunum í friði.“

Áfram óvissustig 

Jón Þór Víglundsson segir daginn hafa verið heldur rólegan, þó að sinna hafi þurft ófærðaraðstoð hér og þar. Meðal í Vatsndal og við Bolungarvíkurgöng. Heppilegt sé að fáir séu ár ferli á þessum tíma árs.

Björgunarsveitarmenn stóðu í ströngu á Snæfellsnesi í gær þegar rúta með tuttugu innanborðs hafnaði utanvegar. Allir sluppu ómeiddir. Enn eru gular veðurviðvaranir í gildi á vesturhluta landsins en veðrið á að vera gengið niður að mestu í kvöld.

Svipuð staða er á snjóflóðahættu að sögn Minneyjar Sigurðardóttur ofanflóðasérfræðingi hjá Veðurstofunni.

„Það hefur ekki skapast meiri hætti við byggð, það eru nokkrir staðir á dreifbýli sem við erum að fylgjast náið með. Mesta hættan er til fjalla og vegum í hlíðum.“

„Það verður engin aflétting í dag á óvissustigi,“ segir Minney. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×