Ein­stefna í seinni hálf­leik kom City aftur á sigurbraut

Siggeir Ævarsson skrifar
Julian Alvarez fagnar með félögum sínum
Julian Alvarez fagnar með félögum sínum Vísir/Getty

Manchester City spilaði sinn fyrsta leik síðan Evrópu- og Englandsmeistararnir tryggðu sér einnig titilinn heimsmeistarar félagsliða. Lærsveinar Pep Guardiola heimsóttu Everton til Bítlaborgarinnar en heimamenn hafa verið öflugir síðan tíu stig voru dregin af liðinu.

Fyrir leikinn í kvöld hafði Everton verið á mikilli siglingu og unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni. Heimamenn fóru betur af stað í kvöld og komust yfir með marki frá Jack Harrison á 29. mínútu.

Markið kom nokkuð gegn gangi leiksins en City-menn virkuðu ekki sannfærandi í fyrri hálfleik þrátt fyrir að vera mun meira með boltann en mark heimamanni kom úr öðru af tveimur skotum liðsins á markið.

Phil Foden jafnaði svo leikinn á 53. mínútu og eftir það var eiginlega aldrei spurning hvernig leikurinn myndi enda, en heimamenn náðu ekki skoti á rammann í seinni hálfleik.

Á 64. mínútu komust gestirnir loks yfir þegar Julián Álvarez skoraði úr víti eftir að Amadou Onana varði marktilraun Nathan Aké með hendinni í teignum.

Everton-menn reyndu hvað þeir gátu til að opna leikinn upp og sækja jöfnunarmarkið en varð lítið ágegnt. Á 86. mínútu gerði Jordan Pickford svo herfileg mistök þegar hann ætlaði að hreinsa frá, kominn lengst út úr markinu. Sendingin fór rakleiðis í sóknarmann City, Bernardo Silva var fljótur að átta sig og smellti boltanum í tómt netið. 

Með sigrinum lyftir City sér í fjórða sætið og eiga leik til góða á bæði Aston Villa og Liverpool. Everton eru aftur á móti ennþá í bullandi fallbaráttu með 16 stig í 17. sæti, einu stigi fyrir ofan fallsæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira