Brig­hton skellti sjóð­heitu liði Totten­ham

Heung-Min vonsvikinn í leiknum í kvöld.
Heung-Min vonsvikinn í leiknum í kvöld. Vísir/Getty

Brighton vann góðan 4-2 heimasigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Tilraun Tottenham til endurkomu undir lokin dugði ekki til.

Fyrir leikinn í kvöld hafði Tottenham möguleika á því að lyfta sér upp í 3. sætið með sigri en Brighton hefur átt misjöfnu gengi að fagna að undanförnu og voru í 9. sæti fyrir leikinn.

Heimamenn byrjuðu hins vegar af miklum krafti. Hinn ungi Jack Hinshelwood kom Brighton yfir á 11. mínútu og Joao Pedro tvöfaldaði forystuna á 23. mínútu úr vítaspyrnu. Staðan í hálfleik 2-0.

Á 63. mínútu virtist Pervis Estupinan síðan vera að gera endanlega út um leikinn þegar hann kom Brighton í 3-0 og þegar Pedro kom liðinu í 4-0 úr annarri vítaspyrnu á 76. mínútu stefndi í algjöra niðurlægingu fyrir Tottenham.

Þeir gerðu þó tilraun til endurkomu. Alejo Veliz minnkaði muninn í 81. mínútu og Ben Davies bætti öðru marki við fimm mínútum síðar. Þetta dugði þó ekki til. Brighton hélt út og vann að lokum 4-2 sigur.

Tottenham er því áfram í 5. sæti deildarinnar, einu stigi á eftir Manchester City en Brighton lyftir sér upp í 8. sætið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira