Enski boltinn

Mynda­töku­maðurinn kom Jürgen Klopp til bjargar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, fagnar með stuðningsmönnum Liverpool eftir leikinn í gærkvöldi.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, fagnar með stuðningsmönnum Liverpool eftir leikinn í gærkvöldi. AP/Jon Super

Fögnuður Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, eftir sigurinn á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi breyttist snögglega í andstöðu sína þegar hann týndi giftingarhringnum sínum.

Klopp er þekktur fyrir að hlaupa í átt að stuðningsmönnum Liverpool og fagna en að þessu sinni missti hann giftingarhringinn og brá augljóslega mikið.

Myndavélarnar náðu því þegar Klopp hætti skyndilega að fagna og fór að leita að hringnum í grasinu á Anfield.

Það gekk ekkert að finna hringinn fyrr en myndatökumaðurinn kom Klopp til bjargar og benti honum hvar hringinn var að finna. Klopp var honum mjög þakklátur og kyssti hringinn fyrir framan myndavélina.

„Ég fékk mikið áfall en nú er ég kominn með hann aftur,“ sagði Klopp. Eftir kossinn þá fagnaði hann með stuðningsmönnum og fékk auðvitað frábærar undirtektir frá kátu Liverpool fólki.

„Guð minni góður, þetta hefði getað verið alveg ömurlegt. Ég týndi hringnum einu sinni áður og þá þurfti ég að ráða atvinnukafara til að finna hann í sjónum,“ sagði Klopp.

„Stundum þegar ég hef misst nokkur kíló þá passar hann ekki lengur,“ sagði Klopp.

Liverpool vann 4-2 sigur á Newcastla í gær og er með þriggja stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×