Kevin De Bru­yne af­greiddi New­cast­le á 21 mínútu

Siggeir Ævarsson skrifar
Kevin De Bruyne fagnar jöfnunarmarki sínu í dag
Kevin De Bruyne fagnar jöfnunarmarki sínu í dag Vísir/Getty

Manchester City hefur verið á góðri leið síðustu vikur og endurheimt Kevin De Bruyne úr meiðslum. De Bruyne byrjaði á bekknum í dag en var engu að síður hetja City þegar upp var staðið.

Heimamenn í Newcastle komust í 2-1 og voru í lykilstöðu þar til De Bruyne kom inn á á 69. mínútu. Hann jafnaði metin í 2-2 fimm mínútum síðar og á 91. mínútu uppbótartímar lagði hann upp kjörið marktækifæri  fyrir Norðmanninn unga Oscar Bobb sem var svellkaldur fyrir framan mark Newcastle og skoraði af öryggi.

Heimamenn munu eflaust naga sig í handabökin yfir því að hafa ekki náð að halda forskotinu en það má kannski segja að City hafi þarna sýnt styrk sinn og sigur þeirra í raun sanngjarn þegar öllu er á botninn hvolft.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira