Innlent

Norski herinn sinnir loft­rýmis­gæslu næstu vikurnar

Atli Ísleifsson skrifar
Norska flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-35 orrustuþotur.
Norska flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-35 orrustuþotur. Stjr

Flugsveit frá norska flughernum er væntanleg til landsins á mánudaginn til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland næstu vikurnar.

Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að þetta verði í áttunda sinn sem Norðmenn leggi verkefninu lið, en norski flugherinn hafi síðast viðveru hérlendis í janúar og febrúar á síðasta ári.

„Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-35 orrustuþotur og allt að 120 liðsmenn og hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Þar dvelja einnig flugsveitir aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands.

Auk flugsveitarinnar tekur starfsfólk í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Udem í Þýsklandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli þátt í verkefninu. Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 15. til 24. janúar, með fyrirvara um veður.

Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í samvinnu við Isavia, í umboði utanríkisráðuneytisins, en ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki fyrir miðjan febrúar,“ segir í tilkynningunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×