Segja Hjálmar staðfesta trúnaðarbrest með öðrum orðum Jakob Bjarnar skrifar 12. janúar 2024 16:51 Fram kemur í yfirlýsingu frá stjórn BÍ að Hjálmar hafi neitað að sinna þeim verkefnum sem fyrir hann voru lögð. Ekki hafi verið neinn kostur í stöðunni annar en láta hann fara. vísir/vilhelm Stjórn Blaðamannafélags Íslands áréttar að ákvörðun um starfslok framkvæmdastjóra félagsins, Hjálmars Jónssonar, var einróma samþykkt í stjórn félagsins og kemur til vegna trúnaðarbrests milli hans og stjórnar sem hefur verið viðvarandi um nokkurra mánaða skeið.
Svo segir í tilkynngu sem stjórn BÍ hefur sent frá sér en allnokkrar væringar hafa orðið eftir að framkvæmdastjóra félagsins, Hjálmari Jónssyni, var vikið úr starfi. Hjálmar er afar óhress með það hvernig mál hafa þróast og hefur hann ritað grein á Vísi þar sem hann gerir grein fyrir því á hverju steytir. Stjórn Blaðamannafélagsins tekur hann á orðinu og segir einmitt að orð hans staðfesti þennan trúnaðarbrest – að hann hafi ekki viljað starfa með stjórn félagsins eða í samræmi við ákvarðanir stjórnar. Eins og fram hefur komið var síðasta atvikið sem birti þann trúnaðarbrest í síðustu viku. „Stjórn hafði samþykkt að formaður skyldi fá skoðunaraðgang að reikningum félagsins, en framkvæmdastjóri neitaði að framfylgja þeirri ákvörðun. Auk þess hefur framkvæmdastjóri ekki unnið fjölmörg þeirra verkefna sem stjórn hefur falið honum, ásamt því að hann hefur neitað að mæta á fund með formanni og varaformanni. Var stjórnin einróma um það í framhaldinu að óhjákvæmilegt væri að binda enda á ráðningarsamband hans og félagsins.“ Í yfirlýsingunni er áréttað að eðlilegt sé að stjórnin, sem ber ábyrgð á reikningsskilum félagsins, hafi aðgang að reikningum þess. Yfirlýsing stjórnar BÍ Stjórn Blaðamannafélags Íslands áréttar að ákvörðun um starfslok framkvæmdastjóra félagsins, Hjálmars Jónssonar, var einróma samþykkt í stjórn félagsins og kemur til vegna trúnaðarbrests milli hans og stjórnar sem hefur verið viðvarandi um nokkurra mánaða skeið. Yfirlýsingar framkvæmdastjórans fyrrverandi á opinberum vettvangi undanfarna daga opinbera þann trúnaðarbrest – að hann vildi ekki vinna með stjórn félagsins eða í samræmi við ákvarðanir stjórnar. Eins og fram hefur komið var síðasta atvikið sem birti þann trúnaðarbrest í síðustu viku. Stjórn hafði samþykkt að formaður skyldi fá skoðunaraðgang að reikningum félagsins, en framkvæmdastjóri neitaði að framfylgja þeirri ákvörðun. Auk þess hefur framkvæmdastjóri ekki unnið fjölmörg þeirra verkefna sem stjórn hefur falið honum, ásamt því að hann hefur neitað að mæta á fund með formanni og varaformanni. Var stjórnin einróma um það í framhaldinu að óhjákvæmilegt væri að binda enda á ráðningarsamband hans og félagsins. Stjórn áréttar að fullkomlega eðlilegt er að formaður, og eftir atvikum fleiri stjórnarmenn, hafi skoðunaraðgang að reikningum félagsins. Í því felst nauðsynlegt aðhald enda segir í lögum félagsins að stjórn hafi yfirumsjón með starfsemi félagsins og beri á henni fulla ábyrgð. Almennt fer stjórn enda með æðsta vald í málefnum félagsins á milli félagsfunda. Framkvæmdastjóri starfar svo í umboði stjórnar og samkvæmt þeim fyrirmælum og stefnu sem stjórn ákveður. Svo stjórn geti sinnt hlutverki sínu og fylgst með því að rekstur sé í réttu horfi þarf hún að hafa aðgang að bókhaldi og bankayfirlitum. Stjórnarmenn eru að sjálfsögðu bundnir sama trúnaði og framkvæmdastjóri um persónugreinanlegar upplýsingar sem kann að vera að finna í bókhaldi eða bankagögnum félagsins. Ákvörðunin um að segja Hjálmari upp var engum stjórnarmanni léttvæg, var vel ígrunduð af hálfu stjórnar og hefur átt sér langan aðdraganda. Stuttu eftir að Hjálmar komst á eftirlaunaaldur, í apríl sl., ákvað stjórn að auglýsa starf nýs framkvæmdastjóra sem taka myndi við verkefnum Hjálmars þegar hann léti af störfum sökum aldurs. Í því fólst einnig sú fyrirætlun að starfið myndi breytast og að nýr framkvæmdastjóri myndi sinna nýjum verkefnum sem stjórn hafði ákveðið að ráðast í í samræmi við breyttar áherslur í starfi félagsins. Samhliða því fór fram samtal við Hjálmar um nýtt starf, sem stjórnin vildi bjóða honum, þar sem hann myndi áfram sinna verkefnum í þágu félagsmanna á sömu kjörum og hann hefur notið. Sú vinna, sem var unnin með fullri vitund Hjálmars, var með aðkomu ráðningarskrifstofu. Í tengslum við það ferli afhjúpaðist sá trúnaðarbrestur sem að ofan greinir með fyrrgreindum afleiðingum. Á sama stjórnarfundi og stjórn tók ákvörðun um starfslok Hjálmars var ákveðið að aðalfundi félagsins yrði flýtt svo sem verða má. Svo fljótt sem endurskoðandi félagsins getur lokið við að ganga frá ársreikningum sem þá þurfa að liggja fyrir verður boðað til fundarins, en samkvæmt lögum félagsins skal það gert með minnst mánaðar fyrirvara. Vonast er til að hægt verði að halda aðalfund í byrjun mars. Þar verður kosið um helming stjórnar til tveggja ára, líkt og lög félagsins gera ráð fyrir. Þá lýkur einnig kjörtímabili formanns og því kosið um formann til næstu tveggja ára. Stjórn samþykkti á fundi sínum í morgun að setja starfsreglur fyrir skrifstofu félagsins og hefja samhliða vinnu við nánari stefnumótun í samvinnu við félagsmenn. Ákveðið var að halda félagsfund fyrir lok mánaðarins þar sem stefna félagsins til framtíðar verður rædd. Stjórn Blaðamannafélags Íslands
Fjölmiðlar Félagasamtök Stéttarfélög Tengdar fréttir Íslenska veikin! Númer eitt. Ég skrifa þessa grein vegna þess að trúverðugleiki blaðamanna og Blaðamannafélags Íslands skiptir höfuðmáli fyrir lýðræðislega umræðu og það aðhald sem hún veitir. 11. janúar 2024 15:24 Hjálmar lætur af störfum eftir ágreining við stjórn BÍ Hjálmar Jónsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands. Honum bauðst að skrifa undir starfslokasamning en hann hafnaði. 10. janúar 2024 12:08 Mest lesið „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Innlent Engin röð á Læknavaktinni Innlent Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Innlent Ógeðslega stoltur af kennurum Innlent Skora á RÚV að beita sér fyrir því að Ísrael verði vikið úr keppni Innlent Kjarasamningur kennara í höfn Innlent Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Innlent Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Innlent Yfir 50 látist af völdum óþekktra veikinda í Austur-Kongó Erlent Segir lífeyrisgreiðslur skertar á fölskum forsendum Innlent Fleiri fréttir Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Handtökur vegna nágrannaerja og slagsmála í miðbænum Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Skora á RÚV að beita sér fyrir því að Ísrael verði vikið úr keppni „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Ógeðslega stoltur af kennurum Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Kjarasamningur kennara í höfn Engin röð á Læknavaktinni Segir lífeyrisgreiðslur skertar á fölskum forsendum Reykjavík ekki ljót borg Hefur enga skoðun á máli Ragnars Þórs Ókunnugir og fyrrverandi meðal þeirra sem gætu verið að fylgjast með Segir upp eftir rúma tvo áratugi í starfi: „Það virðist enginn hlusta“ Bylgjan og FM957 liggja niðri Skjálftavirkni fer vaxandi Kjaftshögg, falin hætta og deila um íslenska atriðið Vilja styrkja viðgerðir á sögufrægum byggingum Kjarnorkukafbátur í Eyjafirði Konur á miðjum aldri þær sem helst áreita karlkyns lögregluþjóna Verði gott fyrir lögreglu að vita hvar mörkin liggja Atburðir helgarinnar kjaftshögg fyrir kennara Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til „Ef ég segði Hitler skepnu væri ég þá að blammera alla þýsku þjóðina?“ Taldi drenginn myndu deyja yrði hann ekki umskorinn Verður á launum hjá stéttarfélagi og Alþingi út júní Leita að línunni Sólveig með sama rétt en segist ekki myndu nýta hann Viðkvæðið enn að kennarar yngri barna eigi minna skilið Vill að Ríkisendurskoðun rannsaki styrkjamálið Sjá meira
Íslenska veikin! Númer eitt. Ég skrifa þessa grein vegna þess að trúverðugleiki blaðamanna og Blaðamannafélags Íslands skiptir höfuðmáli fyrir lýðræðislega umræðu og það aðhald sem hún veitir. 11. janúar 2024 15:24
Hjálmar lætur af störfum eftir ágreining við stjórn BÍ Hjálmar Jónsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands. Honum bauðst að skrifa undir starfslokasamning en hann hafnaði. 10. janúar 2024 12:08