Innlent

Lög­regla lýsir eftir Jóhanni Inga

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ekkert hefur spurst til Jóhanns síðan á sunnudag.
Ekkert hefur spurst til Jóhanns síðan á sunnudag. Mynd/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóhanni Inga Ögmundssyni, 30 ára.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að Jóhann er klæddur í svarta hettupeysu, svartar joggingbuxur og er með með svarta húfu. Hann er í hvítum strigaskóm.

Jóhann Ingi er þéttvaxinn og um 190 sentimetrar á hæð, er með ljós gráblá augu og nánast sköllóttur með skeggrót.

Síðast er vitað um ferðir hans í í Háholti í Mosfellsbæ síðdegis síðasta sunnudag. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Jóhanns eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×