Innlent

Kindurnar fegnar að sjá Sig­rúnu

Jakob Bjarnar skrifar
Kindurnar voru fegnar að sjá Sigrúnu eiganda sinn en þær eru nú komnar í hesthús í Keflavík hjá góðum manni. Þar væsir ekki um þær.
Kindurnar voru fegnar að sjá Sigrúnu eiganda sinn en þær eru nú komnar í hesthús í Keflavík hjá góðum manni. Þar væsir ekki um þær. vísir/sigrún

Sigrún Eggertsdóttir frístundabóndi fór í dag til Grindavíkur og sótti fé sitt, þrjátíu kindur alls. Þær voru fengnar að sjá Sigrúnu.

Neyðarrýming í kjölfar gossins í og við Grindavík setti strik í reikninginn. Fjölmargir frístundabændur eru með fé á húsum

„Nei, þetta var ekkert vesen. Við fengum símtal í gær. Þeir komu bara og sögðu, nú megið þið koma inn fyrir. Það fylgdi okkur björgunarsveitarmaður að kofanum,“ segir Sigrún.

Kindurnar slógust um að fá klapp frá eiganda sínum

Hún segist vera með 30 kindur alls með hrútum og kindum. Sigrún segir að þær hafi ekki verið orðnar vatnslausar.

„Við erum með stóra bala inni og þeir eru alltaf fullir af vatni. Það náði enn niður og þær hafa ekkert verið vatnslausar. Svo fór björgunarsveitarmaður og vitjaði þeirra í gær, þannig að þær voru bara í góðu standi.“

Sigrún segir marga frístundabændur í Grindavík og spyr hvort það séu ekki allir frístundabændur á Íslandi? „Við erum í það minnsta ekki í þessu fyrir neitt nema hafa gaman að þessu.“

Og kindurnar voru ánægðar að sjá eiganda sinn.

„Já,já. Þær eru nú yfirleitt fegnar að sjá hvern sem er. Hrúguðust í kringum mig þegar ég kom í hópinn. Og slógust um að fá klappið.“

Kindurnar komnar í hesthús í Keflavík

Sigrún segir kindurnar vita sínu viti, þær séu ekki skynlausar skepnur.

„Ég held líka að það ahfi gengið eitthvað á þarna inní kofa, einhverjar spýtur lágu þarna á gólfinu, þannig að þær hafa fundið eitthvað á sér.“

Sigrún segist sjálf búa í Kópavogi en hún er úr Grindavík og þar er fjölskylda hennar þannig að hún fer mikið til Grindavíkur. Hún segir að fólk hafi, þegar rýmt var, ekki haft nein tök á að taka féð með. Og hún var örlítið óörugg þegar hún fór þarna um.

„Það var búið að tala um svo mikla gliðnun en það var ekkert þarna niðri við fjöruna. Mestu lætin voru þarna fyrir ofan,“ segir Sigrún. En fjárhús hennar eru nánast í fjöruborðinu, við Sjávarbraut við Stóru-Bót.

„En við sóttum kindurnar og fengum inni fyrir þær í hesthúsi í Keflavík hjá góðum manni. Það er landris í Grindavík núna og ekkert hægt að segja til um hvað verður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×