Ungverjar fögnuðu að lokum 33-25 sigri eftir að hafa haft algjöra yfirburði í seinni hálfleiknum.
„Auðvitað kom þessi munur á óvart. Ísland er með frábært lið og við eigum langa sögu af leikjum við Íslendinga. Ég held að ég hafi spilað við Ísland svona sjö sinnum á stórmóti á mínum ferli.
Við bjuggumst auðvitað ekki við þessum rosalega mun en vörnin okkar og markvörður stöðvaði allt í seinni hálfleik. Þeir misstu boltann, klúðruðu skotum, og á meðan vorum við einbeittir og gerðum fá mistök í sókninni. Spiluðum langar sóknir og fundum leiðir til að skora. Seinni hálfleikurinn var mjög, mjög góður,“ sagði Lékai.
Þessi afar snjalli leikstjórnandi er vel meðvitaður um hve erfiðir Ungverjar hafa oft reynst Íslendingum:
„Ég veit ekki hvernig þetta gerist en við erum alltaf að mæta Íslandi. Ég held að fólki á Íslandi líki ekkert voðalega vel við okkur,“ sagði Lékai léttur í bragði.
Segir Ísland geta unnið öll lið í milliriðlinum
„En íslenska liðið er virkilega gott lið sem getur unnið hvaða lið sem er í milliriðlinum. Þetta er mjög gott lið, góðir leikmenn, en að þessu sinni vorum við betri,“ bætti hann við eins og sannur herramaður.
Mikið var rætt um mikilvægi línumannsins Bence Bánhidi í aðdraganda leiksins en hann fékk rautt spjald eftir korters leik. Það virtist síður en svo draga úr styrk Ungverja:
„Við erum lið. Þó að einn leikmaður detti út, jafnvel einn sá mikilvægasti eins og Bánhidi, þá berjumst við saman allt til enda. Við erum kannski ekki í heimsklassa, hver og einn fyrir sig, en sameinaðir erum við í heimsklassa sem lið,“ sagði Lékai.
Næsti leikur Íslands á EM er gegn Þýskalandi á morgun. Öflugt teymi Vísis er í Þýskalandi og fjallar um mótið í máli og myndum.