Íslenski boltinn

47 árum yngri en meðdómarinn sinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aðalsteinn Tryggvason var aðaldómari leiksins og honum til aðstoðar voru þau Stefán Aðalsteinsson og Leyla Ósk Jónsdóttir.
Aðalsteinn Tryggvason var aðaldómari leiksins og honum til aðstoðar voru þau Stefán Aðalsteinsson og Leyla Ósk Jónsdóttir. KSÍ

Það er aldrei of snemma að byrja að dæma og aldrei of seint að hætta að dæma. Knattspyrnusamband Íslands benti á tvö góð dæmi um þetta.

Í leik á Kjarnafæðismótinu nú á dögunum var mjög áhugavert dómarateymi að störfum. Aðalsteinn Tryggvason var aðaldómari leiksins og honum til aðstoðar voru þau Stefán Aðalsteinsson og Leyla Ósk Jónsdóttir.

Það sem gerir þetta dómarateymi áhugavert er að tæp hálf öld er á milli aðstoðardómaranna.

Leyla Ósk er nýorðin 14 ára og var hún að dæma sinn þriðja leik í Kjarnafæðismótinu og á hún svo sannarlega framtíðina fyrir sér í dómsgæslu.

Stefán verður 63 ára á árinu og er hann hvergi nærri hættur að dæma. Stefán hefur dæmt frá 17 ára aldri eða í 47 ár og telur hann leikina sína komna yfir 1500 talsins.

Þegar Leyla fæddist, árið 2009, var Stefán búinn að dæma í 31 ár. Hjá bæði Leylu og Stefáni er dómgæsla í fjölskyldunni því Páll, sonur Stefáns, er einnig dómari og faðir Leylu, Zakír Jón Gasanov, er einnig dómari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×