Sameiningin kom í kjölfarið á kaupum hins rótgróna þjónustufyrirtækis Fastus á hinum félögunum. Að sameiningu lokinni var farið í gagngera endurskoðun á útliti og heildarásýnd á hinu nýja, sameinaða félagi. Guðbjörg Magnea Matthíasdóttir útgerðarkona í Vestmannaeyjum á rúmlega níutíu prósenta hlut í Fastus.
Fyrirtækið er flutt í nýjar höfuðstöðvar að Höfðabakka 7 í Reykjavík en þar er glæsileg verslun, sýningareldhús, skrifstofur, verkstæði og vörulagerar fyrir bæði svið, auk varahlutalagers. Áætluð ársvelta samstæðunnar er u.þ.b. sjö milljarðar króna.

Expert sérhæfir sig í ráðgjöf og sölu á tækjum og vörum fyrir stóreldhús, hótel og veitingastaði. Þar er einnig eitt stærsta tæknisvið landsins sem sér um viðhald og ýmsa þjónustu við eldhús- og kælitæki og sérhæfðan tækjabúnað fyrir heilbrigðisgeirann. Hjá Fastus heilsu er áherslan á sölu ýmissa sérhæfðra lækningatækja, búnaðar og rekstrarvöru fyrir heilbrigðisstofnanir og einstaklinga.
Arnar Bjarnason og Guðrún Gunnarsdóttir eru framkvæmdastjórar Fastus. Að þeirra sögn er sameiningin gerð svo viðskiptavinir fái betri þjónustu.
„Bæði fyrirtækin, Fastus og Expert, eru þekkt á sínum sviðum, en með sameiningu þeirra náum við betur að tvinna saman sölu og þjónustu, meðal annars með því að bjóða upp á þjónustusamninga sem viðskiptavinir eru að kalla eftir. Með þessu eykst rekstraröryggi viðskiptavina og fyrirsjáanleiki,“ segir Guðrún Gunnarsdóttir.
„Með því að komast öll undir eitt þak þá eykst ekki bara framleiðni starfsmanna heldur geta viðskiptavinir nú nálgast allar vörur og þjónustu á einum stað; eldhúsvörur, heilbrigðisvörur, varahluta- og viðgerðarþjónustu. Sameiningin gefur okkur líka tækifæri til að betrumbæta ferla, sem mun koma viðskiptavinum okkar til góðs,“ segir Arnar Bjarnason í tilkynningu.