Innlent

Fjöl­mennt í fanga­geymslu í nótt

Lovísa Arnardóttir skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af nokkrum ökumönnum í nótt.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af nokkrum ökumönnum í nótt. Vísir/Vilhelm

Nokkrir gistu í fangageymslum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt samkvæmt upplýsingum úr dagbók lögreglunnar. 

Tvennt gisti þar vegna rannsóknar á þjófnaði og sá þriðji vegna hótana og annarlegrar hegðunar. Þá var sá fjórði vistaður í fangageymslu vegna gruns um húsbrot, vörslu fíkniefna og brot á vopnalögum.

Lögreglan hafði einnig afskipti af nokkrum ökumönnum vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna.

Þá var í matvöruverslun einni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um þjófnað þrisvar á tveimur klukkustundum. Samkvæmt dagbók lögreglunnar var málið afgreitt á staðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×