Lífið

Bað kærustunnar í þrjú þúsund metra hæð

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Bónorðið virðist hafa komið Jackson verulega á óvart. 
Bónorðið virðist hafa komið Jackson verulega á óvart.  Amy Jackson

Breski leik­ar­inn Ed Westwick bað um hönd kærustu sinnar og leikkonunnar Amy Jackson á hinni hangandi brú, Peak Walk by Tissot, í svissnesku Ölpunum á dögunum. 

Parið greindi frá trúlofuninni á Instagram í gær með fallegri myndafærslu. Þar mátti sjá Westwick á skeljunum í 3000 metra hæð á milli útsýnispallanna Les Diablerets og Scex Rouge í Gstaad. 

Bónorðið virðist hafa komið Jackson verulega þar sem hún var með báðar hendur fyrir munninum. 

„Hell yes,“ skrifaði Jackson við færsluna. 

Samkvæmt bandaríska miðlinum People kynntist parið á viðburði á vegum bílaframleiðandans Aston Martin, Silverstone racetrack, árið 2021 í Englandi. Þau fóru leynt með samband sitt í fyrstu en opinberuðu það í júní 2022.

Westwick er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Chuck Bass í dramaþáttaröðinni Gossip Girl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.