Lífið

Ó­venju­legt Euro­vision lag Íra vekur at­hygli

Jón Þór Stefánsson skrifar
Bambie Thug syngur fyrir hönd Íra í Malmö
Bambie Thug syngur fyrir hönd Íra í Malmö Getty

Söngvarinn Bambie Thug mun fara með framlag Írlands í Eurovision í Malmö. Lag háns Doomsday Blue hefur vakið verðskuldaða athygli á samfélagsmiðlum.

Sex lög börðust um að verða framlag Íra í sjónvarpsþættinum Late Late Show í Írska ríkissjónvarpinu síðastliðinn föstudag. 

Líkt og áður segir bar Doomsday Blue bar sigur úr býtum, en líkt og í íslensku söngvakeppninni eru það bæði símakosning og niðurstaða dómnefndar sem ráða úrslitum.

„Þú getur ekki sett mig í kassa, og ef þú gerir það, þá mun ég brjótast úr kassanum, eða endurhanna kassann,“ sagði Bambie í kynningarmyndbandi fyrir söngvakeppnina.

Myndband af flutningi Bambie Thug á Doomsday Blue má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.