Þetta kemur fram í yfirferð Veðurstofunnar á skjálftunum um liðna helgi.
Þar segir að flestir skjálftanna hafi verið eftir hádegi á sunnudaginn. Stærstu skjálftarnir hafi mælst 3,1 klukkan 05:28 á laugardeginum og 2,9 klukkan 12:32 á sunnudeginum.
„Ein tilkynning barst Veðurstofunni um að sá fyrri hefði fundist í Breiðholti. Tveir smáskjálftar mældust á svæðinu á mánudaginn, báðir undir 1,0 að stærð, en ekki hafa mælst skjálftar á svæðinu síðan þá en mögulegt er þó að virknin taki sig upp á ný.
Skjálftarnir eru í Húsfellsbruna, norðarlega á misgengi sem hefur verið kallað Hvalhnúksmisgengið. Hvalhnúksmisgengið er um 17 km langt norður-suðlægt sniðgengi og nær frá Hlíðarvatni í suðri. Það er líklega ábyrgt fyrir stærstu skjálftum sem mælst hafa á Reykjanesskaganum, svokölluðum Brennisteinsfjallaskjálftum sem urðu árin 1968 og 1929 og voru um 6 að stærð,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Ekki vegna kvikuhreyfinga
Haft er eftir Kristínu Jónsdóttur, deildarstjóra skjálfta og eldvirkni á Veðurstofunni, að það séu engar mælingar sem bendi til þess að kvika sé að safnast saman undir Brennisteinsfjöllum. „Skjálftavirknin sem mældist um helgina er ekki vegna kvikuhreyfinga eins sést hefur í tengslum við jarðhræringar við Fagradalsfjall og norðan Grindavíkur“ segir Kristín.
Ennfremur segir að jarðskjálftahrinan á milli Húsafells og Bláfjall um helgina hafi verið á þekktu misgengi sem heiti Hvalhnúksmisgengið, en á þessu svæði séu dæmi um svokallaða sniðgengisskjálfta sem séu þekktir á Suðurlandi og Reykjanesskaga.
„Slíkir skjálftar verða vegna landreksspennu sem hleðst upp þegar N-Ameríkuflekinn og Evrópuflekinn hreyfast framhjá hver öðrum. Þessi spenna losnar reglulega í stærri skjálftum sem talið er að ríði yfir skagann á um 50 ára fresti. Má því segja að kominn sé tími á annan Brennisteinsfjallaskjálfta, óháð öðrum jarðhræringum.
Ef kvika væri að safnast þarna saman ætti að sjást merki um landris í gögnum Veðurstofunnar líkt og við höfum séð við Svartsengi og Fagradalsfjall,“ segir í tilkynningunni.
Stærstu skjálftarnir á Reykjanesskaga
Kristín segir engin merki vera um kvikusöfnun. „Það er hins vegar mikilvægt að vera meðvituð um að skjálftar sem eiga upptök á Hvalhnúksmisgenginu eru stærstu skjálftar sem hafa riðið yfir Reykjanesskagann“, segir Kristín.
Verði jarðskjálfti af stærð 6 á Hvalhnúksmisgenginu mun hann finnast vel um mest allt landið og sér í lagi vel á höfuðborgarsvæðinu, en helsta hættan er tengd snörpum hreyfingum á innstokksmunum og mestu hreyfingar geta fært húsgögn úr stað. Þó er vert að geta þess að hreyfingar verða ekki þess eðlis að byggingar laskist verulega, enda gera byggingarstaðlar ráð fyrir slíkum hreyfingum.