Innlent

Björg­vin Páll eyðir ó­vissunni

Árni Sæberg skrifar
Björgvin Páll Gústavsson ætlar ekki að verða forseti að svo stöddu.
Björgvin Páll Gústavsson ætlar ekki að verða forseti að svo stöddu. VÍSIR/VILHELM

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkmaður í handbolta, hefur tilkynnt að hann muni ekki gefa kost á sér í forsetakosningunum í sumar. Hann dreymir þó um að verða forseti, en ekki núna.

Þetta kemur fram í langri færslu Björgvins Páls á Facebook.

Hann segir meðal annars að draumur hans um að verða forseti hafi fyrst kviknað inni á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, BUGL, þegar hann var aðeins átta ára gamall.

Sá draumur hafi svo styrkst við móttöku á fálkaorðu fimmtán árum síðar, sá draumur hafi síðan orðið aðeins raunverulegri með útgáfu barnabókar hans, Barn verður forseti, í desember 2022.

Draumurinn hafi fyrst orðið spennandi þegar þegar Reykjavík síðdegis og Vísir stóðu fyrir könnun fyrir rúmu ári síðan þar sem fram kom að um fjörutíu prósent aðspurðra gátu séð hann fyrir sér sem forseta Íslands.

Á sér marga drauma

Björgvin Páll fjallar í löngu máli um embætti forseta, pólitíkina, umræðu um forsetakosningarnar í sumar og margt fleira.

„En langar mig að verða forseti? Svarið við þeirri spurning er já. Afhverju langar mig það er svo öllu flóknari spurning sem ég hef reynt að svara lengi? Er það til þess að uppfylla draum 8 ára stráksins eða snýst þetta um alla hina?“ spyr hann sig undir lok færslunnar.

Hann svarar því með því að segjast eiga sér marga drauma, einn af þeim sé að verða einhvern tímann forseti Íslands, en ekki núna.

„Ég tel mig ekki nægilega lífsreyndan til þess að vera forseti. Eins eru allskonar aðrir draumar að flækjast fyrir mér sem ég þarf að uppfylla fyrst. Þeir draumar tengjast íþróttum, börnunum mínum og öllum hinum börnunum,“ segir Björgvin Páll.

Hann lýkur færslunni á því að vitna í orð Vigdísar Finnbogadóttur: „Vér erum þelið sem draumar spinnast úr.“ Þá segir hann auðvitað „áfram Ísland!“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×