Keppendurnir urðu góðir vinir í ferlinu. Vísir/Hulda Margrét
Idol stemningin náði algjöru hámarki síðastliðið föstudagskvöld þegar sigurvegari seríunnar var krýndur. Glamúrinn gaf ekkert eftir og þau Anna Fanney, Jóna Margrét og Björgvin sungu sitt síðasta, í bili.
Anna Fanney stóð uppi sem sigurvegari og sagði hún að sigurinn hefði komið sér algjörlega í opna skjöldu. Hún og Jóna Margrét stóðu tvær eftir þegar úrslitin voru tilkynnt.
Ásamt þríeykinu komu Júlí Heiðar og Patrik Atlason fram og fluttu nýja lagið Heim. Hildur Vala, hin íslenska Elsa, flutti lagið Ég er frjáls úr væntanlega söngleiknum Frost. Hún skein sannarlega skært í pallíettusíðkjól en Patrik klæddist sömuleiðis kjól í sínu atriði frá Hildi Yeoman.
Dómararnir Bríet, Birgitta Haukdal, Daníel Ágúst og Herra Hnetusmjör klæddust sínu fínasta pússi að vanda og sömuleiðis kynnarnir Aron Már og Sigrún Ósk.
Það var líf, fjör, glimmer og gleði í Fossaleyni þar sem keppnin var haldin og hér má sjá stemningsmyndir frá kvöldinu:
Það var gríðarleg stemning í salnum en það seldist upp á innan við mínútu. Vísir/Hulda MargrétBjörgvin var sendur heim í miðjum þætti og eftir stóðu Jóna Margrét og Anna Fanney. Vísir/Hulda MargrétTopp átta föðmuðu Önnu Fanneyju eftir úrslitin. Vísir/Hulda MargrétAnna Fanney tók Amy Winehouse lagið Back to black og dressaði sig upp í stíl við lagið. Vísir/Hulda MargrétJóna Margrét söng af öllum kröftum og gaf sig alla í performansinn. Vísir/Hulda MargrétGústi B var í góðum gír á sviðinu í auglýsingahléi. Vísir/Hulda MargrétSigrún Ósk og Aron Már skinu skært. Vísir/Hulda MargrétÁ bak við Idolið er risastór hópur af öflugu fólki sem leggur höndum saman.Vísir/Hulda MargrétBríet, söngkona og Idol dómari, er sannkallaður ofurtöffari og var stórglæsileg að vanda. Hún virðist hafa dregið tískuinnblástur til sjóðheita tískuhússins Schiaparelli. Vísir/Hulda MargrétDaníel Ágúst Idol dómari stórglæsilegur í ljósfjólubláu. Vísir/Hulda MargrétBirgitta Haukdal glæsileg í gulli. Vísir/Hulda MargrétHerra Hnetusmjör brosti sínu breiðasta. Hann klæddist gallasetti frá tískuhúsinu Louis Vuitton og var með hatt frá íslensku hönnuninni Sigzone. Vísir/Hulda MargrétÞað er erfitt að ímynda sér hvers lags spennufall getur fylgt því að vinna Idolið!Vísir/Hulda MargrétHjónin Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, og Marín Magnúsdóttir. Vísir/Hulda MargrétPatrik mætti í rauðum kjól frá Hildi Yeoman. Með honum hér er Aníta Rós. Vísir/Hulda MargrétJúlí Heiðar var sömuleiðis í Yeoman fatnaði og dansararnir. Vísir/Hulda MargrétAnna Fanney var í sjokki þegar hún áttaði sig á því að hún hefði unnið. Vísir/Hulda MargrétJóna Margrét skein sínu allra skærasta.Vísir/Hulda MargrétAnna Fanney stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins og var stórkostleg. Vísir/Hulda MargrétHildur Vala Baldursdóttir fer með hlutverk Elsu í söngleiknum Frost sem verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í mars næstkomandi. Hildur flutti lagið Ég er frjáls í úrslitaþætti Idol.Vísir/Hulda MargrétUngir Idol aðdáendur biðu spenntir eftir að sjá stjörnurnar á sviði. Vísir/Hulda MargrétBinni Glee mætti ásamt vinkonu sinni Katrínu Önnu. Vísir/Hulda MargrétUngur aðdáandi fékk selfie með Herra Hnetusmjöri. Vísir/Hulda MargrétÞað voru að sjálfsögðu skiptar skoðanir á því hver ætti að vinna. Vísir/Hulda MargrétÞessi hélt með Önnu Fanneyju. Vísir/Hulda MargrétÚtvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson mætti með stjúpdóttur sinni. Vísir/Hulda MargrétGunnar frændi Önnu Fanneyjar var í salnum. Vísir/Hulda MargrétHerra Hnetusmjör og Gústi B í góðum gír. Herra mætti með hattinn, sem er íslensk hönnun.Vísir/Hulda MargrétSoffía Kristín, Baldvin Hlynsson, Una Torfa og Halldór Gunnar Pálsson. Síðastnefnd þrjú sömdu Idol lagið Skýjaborgir og Soffía Kristín er umboðsmaður hjá Iceland Sync.Vísir/Hulda MargrétHalldór, Helga og Sylvía Briem mættu með börnin. Vísir/Hulda MargrétÞað voru fleiri en Herra sem mættu með hattinn. Þessar rokkuðu bleika gelluhatta - og fjaðrir sömuleiðis.Vísir/Hulda MargrétIdol keppendurnir gáfu eiginhandaráritanir. Vísir/Hulda MargrétEfstu átta áttu fallegt móment uppi á sviði. Vísir/Hulda MargrétÞessi voru í góðum gír. Vísir/Hulda MargrétRakel og Birgitta voru báðar í topp átta. Vísir/Hulda MargrétAnna Fanney, Jóna Margrét og Björgvin voru stórglæsileg í hvítum dressum. Vísir/Hulda MargrétMæðginin Elísabet Gunnars og Gunnar Manúel voru í Idol stuði. Vísir/Hulda MargrétStöð 2 drottningarnar Eva Georgs og Þóra Clausen. Vísir/Hulda MargrétAllar hendur upp í loft! Vísir/Hulda MargrétÁfram Björgvin! Þú ert bestur - má sjá skrifað á plakat í forgrunni. Vísir/Hulda MargrétAnna Fanney þurfti smá tíma til að ná áttum eftir að tilkynnt var um að hún hefði sigrað. Vísir/Hulda MargrétFólkið á bak við tjöldin var heldur betur sátt eftir lokaþáttinn. Lúðvík Páll, Eva Georgs, Björgvin og Helga Hauks. Vísir/Hulda MargrétSvava Marín á Vísi var með öfluga Idol vakt í beinni textalýsingu. Vísir/Hulda MargrétAnna Fanney og Jóna Margrét föðmuðust þegar úrslitin voru tilkynnt. Vísir/Hulda MargrétAnna Fanney ásamt Idol kynnunum Sigrúnu Ósk og Aroni Mola. Vísir/Hulda MargrétÞvílík gleði! Vísir/Hulda MargrétSigrún Ósk og Aron Már Ólafsson eru glæsilegir kynnar. Vísir/Hulda MargrétAnna Fanney Idolstjarna 2024.Vísir/Hulda Margrét
„Ég var 100% bara að bíða eftir því að nafnið hennar Jónu yrði kallað upp,“ segir nýkrýndi Idol sigurvegarinn Anna Fanney í samtali við Brennsluna á FM957 í morgun. Hún segist ótrúlega þakklát fyrir sigurinn og hlakkar til að demba sér í stúdíóið.
Stóra stundin er handan við hornið og spennan áþreifanleg. Úrslitakvöld Idol er í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld. Þrjú keppa til úrslita í kvöld, þau Anna Fanney, Björgvin og Jóna Margrét, sem hafa fangað huga og hjörtu þjóðarinnar. Við fylgjumst auðvitað með úrslitakvöldinu og lýsum framvindunni í Vaktinni á Vísi.
Það er komið að því. Ný Idolstjarna Íslands verður krýnd annað kvöld í Idolhöllinni að Fossaleyni. Anna Fanney, Björgvin og Jóna Margrét standa eftir og keppast um að verða næsta Idol-stjarna Íslands.
Spennan magnast í Idolinu og eftir standa þrír. Næstkomandi föstudagskvöld nær spennustigið svo hámarki þegar lokaþáttur Idolsins verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 og í ljós kemur hver stendur uppi sem sigurvegari. Anna Fanney, Björgvin Þór og Jóna Margrét keppast um sigurinn en Lífið á Vísi fékk að kynnast þeim örlítið nánar.
Undanúrslitaþáttur Idol fór fram síðastliðinn föstudag í Idolhöllinni að Fossaleyni. Aðeins þrír keppendur standa nú eftir sem keppast um að verða næsta Idolstjarna Íslands.
Tónlistarmaðurinn og hjartaknúsarinn Júlí Heiðar Halldórsson fagnaði sinni fyrstu sólóplötu, Þrjátíu og þrír, með sérstöku hlustunarpartýi síðastliðið miðvikudagskvöld. Platan er væntanleg 22. mars á 33 ára afmælisdegi Júlís.
Fjórði þáttur Idolsins í beinni útsendingu fór fram í Idolhöllinni á föstudagskvöldið. Þátturinn var æsispennandi, fjórir keppendur mættu til leiks en aðeins þrír komust áfram í úrslitin. Einn keppenda þurfti því að taka poka sinn.