Langaði að ramma inn örvæntinguna Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 16. febrúar 2024 11:30 Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi fyrir Natatorium. Aðsend Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi við ástsæla lagið Hvers vegna varst’ekki kyrr, hér í ábreiðu Sölku Valsdóttur, neonme, fyrir kvikmyndina Natatorium.
Hér má sjá tónlistarmyndbandið: Klippa: neonme ft. ILMUR - Hvers vegna varst'ekki kyrr Salka og Helena Stefánsdóttir, leikstjóri og höfundur Natatorium, vildu finna lag sem hefði tregafullan texta með ákveðnu vonleysi sem er einmitt þema sem tengist kvikmyndinni. Salka rammar inn örvæntinguna og uppgjöfina sem er að finna í textanum á þessari ábreiðu. Salka syngur lagið sjálf ásamt Ilmi Maríu Arnardóttur sem fer með hlutverk Lilju í kvikmyndinni. Lag og texti Hvers vegna varst’ekki kyrr er eftir Jóhann G. Jóhannsson og má finna á sólóplötu Pálma Gunnarssonar Hvers vegna varst’ekki kyrr? sem kom út 1980. Langaði að ramma inn örvæntinguna Um val á lagi og gerð ábreiðunnar hefur Salka Valsdóttir þetta að segja: „Helena hafði samband við mig áður en að tökur á myndinni hófust og bað mig um að útsetja ábreiðu af frægu íslensku lagi fyrir kvikmyndina. Lagið þurfti að vera tilbúið fyrir tökur þar sem aðalpersóna myndarinnar, leikin af Ilmi Maríu Arnardóttur, átti að dansa við lagið í einni senu. Ég vissi að ábreiðan þyrfti að vera dansvæn og að lagið þyrfti að hljóma eins og eitthvað sem unglingsstelpum þætti gaman að syngja. Mig langaði að velja lag sem fólk þekkir og tengir við en reyna að vinna ábreiðuna þannig að lagið gæti vakið upp nýjar tilfinningar hjá fólki. Þetta lag er fullkomið til þess þar sem textinn er svo ótrúlega fallegur og harmþrunginn en upprunalega útgáfa lagsins gerir frekar lítið úr innihaldi textans. Lagið er frekar létt og leikandi í upprunalegri útgáfu en mig langaði að ramma inn örvæntinguna og uppgjöfina sem textinn felur í sér á ábreiðunni. Ég hef alltaf dýrkað þetta lag! Ég hef dansað við það í ótal heimapartýum og sett það á í mörgum bílferðum úti á landi. Þar var mikill heiður og ótrúlega skemmtilegt að fá að gera nýja útgáfu af laginu.“ Salka Valsdóttir notast við listamannsnafnið neonme.Stilla úr myndbandi Vonleysi og þrá Helena Stefánsdóttir segir samstarfið við Sölku hafa gengið mjög vel. „Textinn í Hvers vegna varst’ekki kyrr tengist sterkt persónum myndarinnar, lýsir þeirra innra lífi; einmanaleika, vonleysi og þrá í eitthvað sem við eigum ekki. Salka nálgaðist verkefnið á nýstárlegan hátt, hún gefur laginu nýtt líf á sama tíma og hún sýnir eldri útgáfunni virðingu. Ég vona að fólk tengi við lagið vegna þess að það þekki það og að lagið takið flugið í þessum nýja búningi. Það er skemmtilegt að hugsa að yngri kynslóðir fái að njóta lagsins.“ Hér má sjá stillu úr kvikmyndinni Natatorium: Skelfilegar afleiðingar að komast inn í gjörningahópinn Í fréttatilkynningu um myndina segir: „Kvikmyndin Natatorium segir frá ungri stúlku, Lilju sem kemur til Reykjavíkur til að þreyta inntökupróf í alþjóðlegan gjörningahóp. Hún ákveður að dvelja hjá ömmu sinni Áróru og afa sínum Grími sem hún hefur ekki séð lengi vegna ósættis í fjölskyldunni. Þegar líður á dvöl Lilju fer ýmislegt undarlegt að koma upp á yfirborðið og ljóst er að það sem hefur sundrað fjölskyldunni er hrikalegt leyndarmál sem engin þorir að tala um. Þegar Lilja er tekin inn í listahópinn býður Áróra fjölskyldunni heim til að fagna og hefur það skelfilegar afleiðingar í för með sér.“ Helena Stefánsdóttir er handritshöfundur og leikstýra Natatorium. Elin Petersdottir og Ilmur María Arnardóttir fara með aðalhlutverk. Með önnur hlutverk fara Stefanía Berndsen, Jónas Birkir Alfreðsson, Valur Freyr Einarsson, Arnar Dan Kristjánsson, Stormur Jón Kormákur Baltarsarsson og Kristín Pétursdóttir. Myndin er framleitt af Sunnu Guðnadóttur fyrir Bjartsýn Films. Myndin er styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands og Finnska kvikmyndasjóðnum með stuðningi frá RÚV, SVT og YLE. Natatorium verður frumsýnd þann 23. febrúar á Íslandi.“
Tónlist Kvikmyndahús Bíó og sjónvarp Mest lesið Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar Sjá meira