Viðskipti innlent

Gjald­þrot Cyren upp á 238 milljónir

Bjarki Sigurðsson skrifar
Hallgrímur Thorberg Björnsson var yfirmaður hjá Cyren á Íslandi.
Hallgrímur Thorberg Björnsson var yfirmaður hjá Cyren á Íslandi. Vísir/Vilhelm

Lýstar kröfur í þrotabú netöryggisfyrirtækisins Cyren námu 238,5 milljónum króna auk dráttar vaxta. Tæpar tólf milljónir fengust greiddar upp í forgangskröfur eða um 5,2 prósent. Rekstur félagsins gekk að sögn yfirmanns afar vel en þrot erlends móðurfélags olli gjaldþrotinu.

Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag. 

Vísir greindi frá því í febrúar á síðasta ári að nánast öllu starfsfólki fyrirtækisins hafi verið sagt upp, þar af þrjátíu á Íslandi. Móðurfyrirtæki Cyren stóð þá á barmi gjaldþrots og sagði yfirmaður Cyren á Íslandi þá að uppsagnirnar hafi komið öllum verulega á óvart þar sem reksturinn hér á landi hafi gengið afar vel. Félagið var svo úrskurðar gjaldþrota nokkrum dögum síðar.

Cyren sérhæfði sig í netöryggi og að verjast tölvuárásum og auk starfstöðvanna á Íslandi voru stöðvar um allan heim, til að mynda í Þýskalandi, Bandaríkjunum og Úkraínu. 

Forgangskröfur í bú Cyren námu 225 milljónum króna, búskrafa var 520 þúsund og rest almennar kröfur. Eins og áður kom fram fengust tólf milljónir greiddar í forgangskröfur, búskrafan greiddist að fullu en ekkert fékkst greitt upp í almennar og eftirstæðar kröfur. 

Vírusvarnarhugbúnaður Cyren var keyptur af upplýsingatæknifyrirtækinu OK og stofnað félagið Varist ehf. í kringum þá starfsemi. Hallgrímur Thorberg Björnsson, fyrrverandi yfirmaður hjá Cyren á Íslandi er framkvæmdastjóri nýja félagsins. 

„Starfsfólkið er óaðskiljanlegur hluti af lausnunum og þekking þeirra og reynsla í netöryggismálum telur samtals yfir 250 ár. Með kaupunum fáum við tækifæri til að sækja fram og halda áfram að þróa netöryggislausnir sem eru í fremstu röð á heimsvísu.Ég vil sérstaklega þakka starfsfólki okkar fyrir að hafa staðið með okkur í þessari vegferð,“ var haft eftir Hallgrími við stofnun félagsins.


Tengdar fréttir

Kapp­kosta við þjálfun starfs­fólks til að geta sinnt verk­efnum kollega sinna á flótta í Úkraínu

Starfsmenn tölvuöryggisfyrirtækisins Cyren í Hafnarfirði vinna nú hörðum höndum að því að þjálfa starfsmenn sína þannig að þeir geti tekið að sér verkefni sem hafa verið á könnu kollega sinna á starfstöð fyrirtækisins í Kænugarði í Úkraínu. Starfsmenn fyrirtækisins í Úkraínu hafa margir neyðst til að flýja höfuðborgina á síðustu dögum og hefur því þurft að bregðast við með undirbúa flutning verkefna annað til að hægt sé að tryggja áfram tölvu- og netvarnir viðskiptavina alls staðar um heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×