Innlent

Leigu­bíl­stjóri City Taxi grunaður og tekinn úr um­ferð

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Tveir karlmenn hafa réttarstöðu sakbornings í málinu, annar þeirra er leigubílstjóri.
Tveir karlmenn hafa réttarstöðu sakbornings í málinu, annar þeirra er leigubílstjóri. vísir/vilhelm

Leigubílstjórinn sem grunaður er um nauðgun í byrjun febrúar, var skráður hjá leigubílastöðinni City Taxi. Að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins er viðkomandi ekki lengur að keyra farþega.

„Ég er búinn að senda Samgöngustofu tilkynningu um að hann sé ekki lengur starfandi hjá stöðinni,“ segir Sigtryggur Arnar Magnússon, framkvæmdastjóri City Taxi, í samtali við Vísi. 

Sigtryggur Arnar Magnússon er framkvæmdastjóri City Taxi.Vísir

Varað var við því í dag og í gær, meðal annars á Facebook-hópi leigubílstjóra, að hinn grunaði væri enn að keyra farþega. Sigtryggur Arnar kveðst hafa fengið það staðfest síðdegis í dag að umræddur leigubílstjóri væri vissulega á vegum City Taxi. Sigtryggur Arnar er gagnrýninn á kerfið sem geri stöðvum ekki viðvart ef bílstjóri reynist grunaður um kynferðisbrot.

„Ég útilokaði eins og ég gat að þessi bílstjóri væri frá mér. Þegar lögregla fær að vita að þetta sé leigubílstjóri á okkar vegum, þá virkar kerfið þannig að þau mega ekki gera mér viðvart. Honum er síðan hleypt út þar sem hann heldur áfram að keyra saklaust fólk. Þetta er bara klikkun,“ segir Sigtryggur og vill meina að um nýnæmi sé að ræða í nýsamþykktum lögum um leigubifreiðar. 

„Við eigum bara að geta sent börnin okkar í hvaða leigubíl sem er og ekki að hafa áhyggjur af þessu,“ bætir Sigtryggur við. 

Þórhildur Elín Elínardóttir samskiptastjóri Samgöngustofu segir í samtali við fréttastofu að það hafi hvorki verið þannig í gömlu né nýju lögunum að  öllum aðilum sé gert viðvart þegar leigubílstjóri er grunaður um afbrot.

Greint var frá málinu fyrr í vikunni og kom þá fram að tveir karlmenn væru með stöðu sakbornings í málinu, annar þeirra leigubílstjóri af erlendu bergi brotinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×