Fundurinn verður í Laugardalshöllinni. Honum er streymt hér að neðan og túlkaður á pólsku.
Í tilkynningu frá almannavörnum segir að markmið fundarins sé að upplýsa íbúa um stöðu jarðhræringa og innviða í og við Grindavík. Segir að fram hafi komið að staðan sé ekki góð og því sé mikilvægt fyrir íbúa að fá réttar upplýsingar í máli og myndum.
Dagskrá fundarins:
Sigríður Björk Guðjónsdóttir opnar fundinn, Embætti ríkislögreglustjóra
Freysteinn Sigmundsson, Háskóli Íslands
Kristín Jónsdóttir, Veðurstofa Íslands
Ari Guðmundsson, Verkís / Varnargarðar
Hallgrímur Örn Arngrímsson, Verkís / Jarðkönnun í Grindavík
Atli Geir Júlíusson, Grindavíkurbær / Frárennsli og almennt um stöðuna á innviðum Grindavíkurbæjar
Reynir Sævarsson, Efla / Rafmagn og heita vatnið
Úlfar Lúðvíksson, Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum
Fundarstjórn, Almannavarnir
Auk þessara aðila verða fulltrúar eftirtaldra á staðnum:
Vegagerðin
HS Orka
HS Veitur
Náttúruhamfaratrygging Íslands