Innlent

Hádegisfréttir Bylgjunnar

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hádegisfréttir Bylgjunnar verða á sínum stað klukkan tólf. 
Hádegisfréttir Bylgjunnar verða á sínum stað klukkan tólf.  Vísir/Vilhelm

Í hádegisfréttum verður fjallað um stöðuna á kjarasamningsviðræðum en samninganefnd Eflingar ákvað í gær að efna til atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun á meðal ræstingarfólks.

Við heyrum í Sólveigu Önnu Jónsdóttur  formanni Eflingar um þá nýju stöðu sem komin er upp. Hún telur ríkan verkfallsvilja á meðal hópsins.

Enn aukast líkurnar á eldgosi á næstu dögum og fyrirvarinn gæti orðið mjög stuttur. Náttúruvársérfræðingur segir þrýstinginn sífellt byggjast upp.

Einnig fjöllum við um mikla þurrkatíð á íslendingaeyjunni Tenerife en stjórnvöld á eyjunni vara við vatnsskorti. 

Í íþróttapakka dagsins segjum við frá Degi Sigurðssyni sem var kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Króata í morgun og fjöllum um úrslitin í ensku bikarkeppninni frá því í gær. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×