Bíó og sjónvarp

Dauð­vona maður horfði á Dune 2 í far­tölvu leik­stjórans

Samúel Karl Ólason skrifar
Hjónin Tanya Lapointe og Denis Villeneuve sendu fartölvu leikstjórans til Kanada, svo dauðvona maður gæti horft á Dune 2, sex vikum á undan öllum öðrum.
Hjónin Tanya Lapointe og Denis Villeneuve sendu fartölvu leikstjórans til Kanada, svo dauðvona maður gæti horft á Dune 2, sex vikum á undan öllum öðrum. AP/Christinne Muschi

Kvikmyndin Dune Part 2 eftir Denis Villeneuve hefur vakið mikla lukku í kvikmyndahúsum um heiminn allan eftir að hún var frumsýnd á dögunum. Tveir menn fengu að horfa á myndina í fartölvu leikstjórans á sjúkrahúsi í Quebec í Kanada, sex vikum á undan öðrum.

Umræddur maður var fyrrverandi kvikmyndagerðarmaður og átti í janúar einungis nokkrar vikur eftir ólifaðar. Hans hinsta ósk var að sjá Dune 2 en myndin var ekki frumsýnd fyrr en í lok febrúar. Hann gat einungis horft á helming myndarinnar og dó nokkrum dögum síðar.

Í samtali við Washington Post segir Josée Gagnon, sem stýrir góðgerðasamtökunum L‘Avant, að tíminn hafi skipt miklu máli og leitaði hún fyrst til samfélagsmiðla. Þar bað hún um aðstoð við að komast í samband við Vileneuve.

Þann 1. mars sagði Gagnon frá því á Facebook að Villeneuve og eiginkona hans, einn framleiðanda kvikmyndarinnar, hefðu tekið vel í beiðnina. Bæði eru þau frá Kanada. Fyrst vildu þau koma manninum í flugvél til Montreal eða Los Angeles svo hann gæti horft á myndina. Það gekk ekki eftir vegna þess hve veikur maðurinn var orðinn.

Þann 16. janúar flaug aðstoðarmaður Villeneuve til Quebec með fartölvu leikstjórans, svo maðurinn og vinur hans gátu horft á myndina á sjúkrahúsi. Báðir þurftu að skrifa undir þagnarsamkomulag og máttu ekki vera með síma sína þegar þeir horfðu á myndina.

Gagnon segir manninn hafa verið orðinn verulega veikan og að hann hafi einungis getað horft á hálfa myndina en hún er tæplega þriggja klukkustunda löng. Þá þurfti hann að hætta vegna sársauka og lést maðurinn nokkrum dögum síðar.


Tengdar fréttir

Villeneuve til í þriðju myndina

Denis Villeneuve segist hafa áhuga á því að gera tvíleik sinn um bókina Dune að þríleik, með þriðju kvikmyndinni sem myndi þá fjalla um bókina Dune Messiah, annarrar bókar Frank Herbert um Paul Atreides og plánetuna Arrakis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.