Viðskipti innlent

Magnús að­stoðar Finn í nýju hlut­verki

Árni Sæberg skrifar
Magnús er nýr aðstoðarforstjóri Haga. Finnur er forstjóri.
Magnús er nýr aðstoðarforstjóri Haga. Finnur er forstjóri. Vísir

Magnús Magnússon hefur tekið við stöðu aðstoðarforstjóra Haga, en um nýtt hlutverk innan samstæðu Haga er að ræða.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að að Magnús þekki vel til Haga en hann hafi gegnt stöðu framkvæmdastjóra stefnumótunar og rekstrar frá því snemma árs 2021, en muni nú ásamt því einnig taka að sér hlutverk aðstoðarforstjóra.

Á næstu mánuðum muni hann ásamt öðru taka að sér það verkefni að setja á laggirnar nýtt svið viðskiptaþróunar, sem sé í samræmi við áætlanir Haga um að leggja aukna áherslu á nýja tekjustrauma.

„Rekstur Haga hefur gengið vel á undanförnum árum, þar sem áhersla hefur verið lögð á að styrkja helstu rekstrareiningar í oft ögrandi rekstrarumhverfi. Við munum á næstu misserum halda áfram að styrkja núverandi stoðir í rekstri Haga, en því til viðbótar munum við hér eftir leggja aukna áherslu á viðskiptaþróun sem lykilþátt í okkar starfi. Þetta þýðir að við munum í frekara mæli horfa til nýrra tækifæra, bæði þeirra sem tengjast beint okkar starfsemi, verslun með matvöru og eldsneyti, en einnig til nýrra tekjustrauma eða stoða til viðbótar við okkar kjarnastarfsemi í dag,“ er haft eftir Finni Oddssyni, forstjóri Haga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×