„Það er greinilega búið að vera þarna í einhvern tíma án þess að við höfum tekið eftir því. Þetta er suðaustan af eyjunni, svolítið langt frá þorpinu sjálfu, svolítið langt frá alfaraleið,“ segir Ásrún Ýr Gestsdóttir, verkefnastjóri Áfram Hrísey, í samtali við fréttastofu.
Hún segir starfsmenn á hvalaskoðunarbát hafa tekið eftir veiklulegum hnúfubak fyrir utan eyjuna síðasta haust. Þeim grunar að hræið sé af þeirri skepnu.

Ásrún segir krakkana í skólanum í Hrísey hafa fengið fregnir af hræinu þegar kafari lét þau vita að hann hafi séð hann af sjó. Í kjölfarið hafi hópur krakka farið í leiðangur og skoðað hvalinn. Í þeim hópi var Stefán Pétur Bragason sem tók myndir af hnúfubakknum.
„Hann er orðinn bleikur og hvítur og rotinn,“ segir Ásrún, sem hefur þó eftir fólki sem hefur skoðað hvalinn að merkilega lítil lykt sé af honum. „Hann er þá líklega bara kominn yfir það stig.“
Ásrún segist ekki hafa hugmynd um hvað sé gert við hnúfubakshræ. Hún segist ekki vita til þess að nokkur fræðingur hafi fengið tækifæri til að skoða hvalinn.
